| Sf. Gutt

Kenny var um tíma framkvæmdastjóri hjá Blackburn Rovers, Newcastle United og Celtic. Hann kom Blackburn upp í efstu deild og gerði liðið að Englandsmeisturum. Hann vann Deildarbikarinn með Celtic. Kenny settist í helgan stein þar til Rafael Benítez fékk hann til félagsins sem sérlegan sendiherra sumarið 2009.

Í október 2013 var Kenny skipaður í stjórn Liverpool Football Club. Haustið 2017 var Aldarstúkan endurskírð og ber nú nafn Kenny Dalglish. Árið eftir var Kenny aðlaður af Elísabetu Bretadrottningu.
Á hlýju sumarkvöldi í júlí í 2020 krýndi Kenny Dalglish Liverpool Englandsmeistara í 19. sinn en hann hafði verið framkvæmdastjóri þegar 18. titillinn vannst. Kóngurinn afhenti verðlaunapeninga úr gulli áður en hann færði Englandsbikarinn í hendur Jordan Henderson fyrirliða Liverpool sem hann hafði fengið til félagsins á seinni valdatíð sinni. Allt var nú fullkomnað!


Sem fyrr segir er Kenny Dalglish af flestum talinn besti leikmaður sem hefur spilað fyrir hönd Liverpool. Hann var sigursæll framkvæmdastjóri hjá félaginu en þar fyrir utan hefur hann unnið þrekvirki utan vallar. Hæst stendur vinna hans fyrir og með fólkinu sem átti um sárt að binda vegna harmleiksins á Hillsborough. Hann og Marina, kona hans, hafa líka unnið mikið að góðgerðarmálum í Liverpool borg og safnað stórfé fyrir ýmis málefni.
Afrek Kenny hjá Liverpool innan vallar sem utan verða aldrei leikin eftir. Fljótlega eftir að hann kom til Liverpool sem leikmaður fékk hann viðurnefnið Kóngurinn hjá stuðningsmönnum Liverpool. Hann var, er og verður Kóngur Liverpool Football Club! Verðugur er hann þeirrar nafnbótar!
TIL BAKA
Til hamingju!

Kenneth Mathieson Dalglish er 75 ára í dag. Hann er af flestum talinn besti leikmaður í sögu Liverpool og hefur alla tíð verið goðsögn meðal stuðningsmanna félagsins. Hann er og verður dýrkaður og dáður og afrek hans innan vallar sem utan hjá Liverpool verða aldrei leikin eftir!


Kenny Dalglish fæddist í Glasgow 4. mars 1951. Hann hóf feril sinn með Glasgow Celtic, gerði atvinnumannasamning við félagið 1967 og lék sinn fyrsta leik árið eftir. Á leiktíðinni 1971/72 var hann orðinn fastamaður í liði Celtic. Hann varð fjórum sinnum skoskur meistari og jafn oft bikarmeistari með Celtic auk þess að vinna Deildarbikarinn einu sinni. Kenny lék 338 leiki með Celtic og skoraði 173 mörk.

Hann sagði af sér sem framkvæmdastjóri, í febrúar 1991, yfirkominn af álagi sem fylgdi starfinu en líklega hafði harmleikurinn á Hillsborough meira að segja. Kenny sótti svo til allar jarðarfarir þeirra sem fórust. Hann og fjölskylda hans hafa alla tíð staðið þétt að baki fólksins sem hefur átt um sárt að binda eftir harmleikinn og lagt sitt af mörkum í baráttu þess fyrir réttlæti!
Kenny varð sex sinnum Englandsmeistari með Liverpool, einu sinni bikarmeistari og vann Deildarbikarinn fjórum sinnum. Hann varð þrisvar sinnum Evrópumeistari og vann Stórbikar Evrópu einu sinni. Hann varð fimm sinnum Skjaldarhafi. Sem framkvæmdastjóri vann hann tvo Englandsmeistaratitla og varð einu sinni bikarmeistari. Skjöldurinn vannst þrívegis.
Kenny átti líka glæsilegan feril með skoska landsliðinu. Hann er leikjahæstur allra Skota með 102 landsleiki og skoraði 30 mörk sem er met sem hann deilir með Denis Law.


Kenny varð sex sinnum Englandsmeistari með Liverpool, einu sinni bikarmeistari og vann Deildarbikarinn fjórum sinnum. Hann varð þrisvar sinnum Evrópumeistari og vann Stórbikar Evrópu einu sinni. Hann varð fimm sinnum Skjaldarhafi. Sem framkvæmdastjóri vann hann tvo Englandsmeistaratitla og varð einu sinni bikarmeistari. Skjöldurinn vannst þrívegis.

Kenny átti líka glæsilegan feril með skoska landsliðinu. Hann er leikjahæstur allra Skota með 102 landsleiki og skoraði 30 mörk sem er met sem hann deilir með Denis Law.

Kenny var um tíma framkvæmdastjóri hjá Blackburn Rovers, Newcastle United og Celtic. Hann kom Blackburn upp í efstu deild og gerði liðið að Englandsmeisturum. Hann vann Deildarbikarinn með Celtic. Kenny settist í helgan stein þar til Rafael Benítez fékk hann til félagsins sem sérlegan sendiherra sumarið 2009.


En ein magnaðasta endurkoma allra tíma varð þegar Kenny tók við stjórn Liverpool á nýjan leik í janúar 2011. Hann tók þá við af Roy Hodgson sem var látinn víkja sem framkvæmdastjóri. Á seinni valdatíma sínum vann Kenny kannski mesta afrek sitt á ferli sínum hjá Liverpool þegar hann náði að sameina félagið og stuðningsmennina eftir erfið ár á undan. Kenny vann Deildarbikarinn 2012 en var látinn hætta um vorið.


Í október 2013 var Kenny skipaður í stjórn Liverpool Football Club. Haustið 2017 var Aldarstúkan endurskírð og ber nú nafn Kenny Dalglish. Árið eftir var Kenny aðlaður af Elísabetu Bretadrottningu.

Á hlýju sumarkvöldi í júlí í 2020 krýndi Kenny Dalglish Liverpool Englandsmeistara í 19. sinn en hann hafði verið framkvæmdastjóri þegar 18. titillinn vannst. Kóngurinn afhenti verðlaunapeninga úr gulli áður en hann færði Englandsbikarinn í hendur Jordan Henderson fyrirliða Liverpool sem hann hafði fengið til félagsins á seinni valdatíð sinni. Allt var nú fullkomnað!


Sem fyrr segir er Kenny Dalglish af flestum talinn besti leikmaður sem hefur spilað fyrir hönd Liverpool. Hann var sigursæll framkvæmdastjóri hjá félaginu en þar fyrir utan hefur hann unnið þrekvirki utan vallar. Hæst stendur vinna hans fyrir og með fólkinu sem átti um sárt að binda vegna harmleiksins á Hillsborough. Hann og Marina, kona hans, hafa líka unnið mikið að góðgerðarmálum í Liverpool borg og safnað stórfé fyrir ýmis málefni.


Afrek Kenny hjá Liverpool innan vallar sem utan verða aldrei leikin eftir. Fljótlega eftir að hann kom til Liverpool sem leikmaður fékk hann viðurnefnið Kóngurinn hjá stuðningsmönnum Liverpool. Hann var, er og verður Kóngur Liverpool Football Club! Verðugur er hann þeirrar nafnbótar!
Við óskum Kenny Dalglish til hamingju með afmælið!
Nýlegar fréttir
-
| Mummi
Liverpool páskaegg -
| Sf. Gutt
Leikjatilfærslur -
| Mummi
Kenny Dalglish! Sérstök viðhafnarsýning -
| Sf. Gutt
Florian Wirtz er ekki í lagi! -
| Sf. Gutt
Dregið í Meistaradeildinni -
| Sf. Gutt
James efstur á blaði! -
| Sf. Gutt
Til hamingju! -
| Sf. Gutt
Florian Wirtz á að vera í lagi! -
| Sf. Gutt
Mætið tímanlega! -
| Sf. Gutt
Alexander Isak farinn að braggast
Fréttageymslan




