Anfield á eftir að hafa mikla þýðingu!

Dominik Szoboszlai hefur fulla trú á að Liverpool nái að komast áfram í undanúrslit Meistaradeildarinnar. Hann segir að Anfield Road eigi eftir að hafa mikla þýðingu á morgun.
,,Anfield á eftir að hafa mikið að segja á morgun. Við höfum oft séð það. Á síðustu leiktíð, þessari leiktíð og í gegnum árin. Ekki spurning. Þeir þurfa ekki bara að fást við 11 leikmenn og þá varamenn sem koma við sögu. Þeir þurfa líka að takast á við allan leikvanginn. Við vitum alveg hvernig tilfinningin er að spila á Anfield fyrir hönd Liverpool og fyrir framan stuðningsmenn okkar. Við þurfum ekki meiri hvatningu heldur en þessa. Við vitum hvernig tilfinningin er."
Liverpool tapaði 2:0 fyrir Paris Saint Germain í París í síðustu viku. Annað kvöld kemur í ljós hvort Liverpool nær að snúa dæminu við. Allt getur gerst á Anfield!
-
| Sf. Gutt
Skipt um skoðun! -
| Mummi
Aðalfundur Liverpoolklúbbsins -
| Sf. Gutt
Alexander Isak enn meiddur! -
| Sf. Gutt
Af spjöldum sögunnar! -
| Sf. Gutt
Fimm sæti í Meistaradeildinni -
| Sf. Gutt
Er Alisson Becker á förum? -
| Sf. Gutt
Er ferill Mohamed hjá Liverpool búinn? -
| Sf. Gutt
Hugo búinn í aðgerð -
| Sf. Gutt
Gleðilegt sumar! -
| Sf. Gutt
Mestar líkur á að Arne Slot verði áfram!

