Alexander Manninger látinn

Enn berast sorgartíðindi tengd Liverpool. Í gær var tilkynnt að austurríski markmaðurinn Alex Manninger væri látinn. Hann var ökumaður bíls sem varð fyrir lest nærri Salzburg.
Alex Manninger fæddist í Salzburg í Austurríki 7. júní 1977. Hann varð snemma efnilegur markmaður. Hann hóf feril sinn hjá SV Salzburg á leiktíðinni 1995/96. Alex lék víða á ferli sínum og var á mála hjá 14 félögum í fimm löndum.

Alex lék mikilvægt hlutverk hjá Arsenal á leiktíðinni 1997/98 þegar liðið vann Tvennu deild og bikar. Hann leysti þá David Seaman af og stóð sig með miklum sóma. Hann varð Skjaldarhafi 1998 og 1999. Alex spilaði með Arsenal í fjórar sparktíðir. Á leiktíðinni 2011/12 var hann í liðshópi Juventus sem varð ítalskur meistari. Síðustu leiki sína sem atvinnumaður spilaði hann með Augsburg í Þýskalandi á keppnistímabilinu 2015/16. Hann var hjá Augsburg í fjögur tímabil.

Alex var lánsmaður hjá Liverpool á keppnistímabilinu 2016/17. Hann spilaði aldrei opinberan leik með aðalliðinu en tók þátt í æfingaleikjum. Hann var fjórum sinnum á varamannabekk aðalliðsins. Liverpool var síðasta liðið sem Alex var hjá en hann lagði skó og hanska á hilluna 2017.
Alex Manninger lék sinn fyrsta landsleik sumarið 1999. Alls lék hann 33 landsleiki fyrir Austurríki. Hann þótti mjög traustur markmaður.

Liverpool klúbburinn á Íslandi vottar þeim sem eiga um sárt að binda vegna fráfalls Alex Manninger samúð.
-
| Sf. Gutt
Giovanni Leoni á enn eitthvað í land -
| Sf. Gutt
Merkur áfangi hjá fyrirliðanum! -
| Sf. Gutt
Draumar geta orðið að veruleika! -
| Sf. Gutt
Þrír lykilmenn fjarri góðu gamni! -
| Sf. Gutt
Af kvennaliðinu -
| Sf. Gutt
Hann kenndi mér mjög margt! -
| Sf. Gutt
Virgil van Dijk með 100 landsleiki! -
| Sf. Gutt
Andrew Robertson með 100 landsleiki! -
| Sf. Gutt
Leikjatilfærslur -
| Sf. Gutt
Tveir komnir fyrr heim!

