Í minningu

Í dag eru 37 ár liðin frá Hillsborough harmleiknum. Þá létust 96 stuðningsmenn Liverpool á Hillsborough leikvanginum í Sheffield. Nú eru 97 látnir en Andrew Devine lést árið 2021.

Þennan dag hefur harmleiksins verið minnst í Liverpool og víðar á Englandi. Til ársins 2016 var haldin minningarathöfn á Anfield Road. Þar komu saman aðstandendur þeirra sem létust, forráðamenn og leikmenn Liverpool ásamt öðrum gestum og heiðruðu minningu fórnarlamba slyssins. Síðustu árin hafa ekki verið haldnar minningarathafnir á Anfield.

Minning þeirra 97 er heiðruð á ýmsan hátt í dag. Kirkjuklukkum verður hringt í Liverpool borg klukkan sex mínútur yfir tvö en þá var leikur Liverpool og Nottingham Forest stöðvaður á Hillsborough. Einnig verður mínútu þögn í borginni. Blóm verða lögð við minnismerkið á Anfield fyrir hádegið. Í gærkvöldi var einnar mínútu þögn fyrir leik Liverpool og Paris Saint Germain. Slík athöfn er alltaf viðhöfð á þeim heimaleik Liverpool sem er næstur er 15. apríl.

Andrew Devine (55)
Hvíl í friði.
-
| Sf. Gutt
Í minningu -
| Sf. Gutt
Eins og draumur! -
| Sf. Gutt
Líkt og ólíkt! -
| Sf. Gutt
Til hamingju! -
| Sf. Gutt
Andrew Robertson hylltur! -
| Sf. Gutt
Joe Gomez orðinn góður! -
| Sf. Gutt
Alvaro Arbeloa á Anfield! -
| Sf. Gutt
Af spjöldum sögunnar! -
| Sf. Gutt
Tilkynnt um nýjan aðalstyrktaraðila! -
| Sf. Gutt
Reyni að gera mitt allra besta alla daga!

