Nýtt félagsmet!

Venjulega þegar greint er frá nýjum félagsmetum er vísað til afreka Liverpool liðsins og eða leikmanna þess. En verri met stinga líka upp kollinum. Eitt slíkt varð að veruleika í leik Liverpool í Wolverhampton.
Liverpool tók hús á Wolverhampton Wanderes á þriðjudagskvöldið. Wolves komst yfir með marki Rodrigo Gomes en Mohamed Salah jafnaði. Þegar tvær mínútur voru komnar fram í viðbótartíma skoraði André með skoti við vítateiginn sem fór í Joe Gomez og af honum framhjá Alisson Becker. Þegar flautað var til leiksloka varð ljóst að Liverpool hafði tapað fimmta deildarleik sínum á leiktíðinni með marki andstæðinga í viðbótartíma. Nýtt met en sannarlega af verri gerðinni!
Í fyrsta sinn eftir að Úrvalsdeildin var sett á laggirnar hefur lið tapað fimm sinnum í viðbótartíma á sömu leiktíðinni. Vonandi bætir Liverpool ekki met sitt það sem eftir lifir leiktíðar!
-
| Sf. Gutt
Gleðilega páska! -
| Sf. Gutt
Stórleikur í Manchester! -
| Sf. Gutt
Leikjatilfærslur -
| Sf. Gutt
Arne Slot er undir pressu! -
| Sf. Gutt
Óvíst með Ibrahima Konaté -
| Sf. Gutt
Það er alltaf pressa hjá Liverpool! -
| Sf. Gutt
Alisson meiddur -
| Sf. Gutt
Jürgen Klopp lítur við heima! -
| Sf. Gutt
Liverpool mætir Evrópumeisturunum! -
| Sf. Gutt
Allt eða ekkert!


