Illur grunur staðfestur

Illur grunur hefur verið staðfestur. Það fór eins og flesta grunaði. Meiðslin sem Hugo Ekitike varð fyrir þegar Liverpool tapaði 0:2 fyrir Paris Saint Germain voru mjög alvarleg.
Hugo datt kylliflatur í fyrri hálfleik án þess að nokkur snerting hefði verið og slíkt veit aldrei á gott. Nú hefur verið staðfest að franski framherjinn sleit hásin og verður marga mánuði frá leik og keppni.
Þetta er auðvitað enn eitt áfallið sem verður í herbúðum Liverpool á þessu erfiða keppnistímabili. Hugo er ekki væntanlegur aftur til leiks fyrr en seint á þessu ári eða því næsta. Ólán Liverpool á leiktíðinni ríður ekki við einteyming.
Hugo Ekitike er sem stendur markahæsti leikmaður Liverpool það sem af er leiktíðar. Hann er búinn að skora 17 mörk og hefur að auki lagt upp sex. Það er ljóst að franski framherjinn skilur eftir sig stórt skarð!
-
| Sf. Gutt
Skipt um skoðun! -
| Mummi
Aðalfundur Liverpoolklúbbsins -
| Sf. Gutt
Alexander Isak enn meiddur! -
| Sf. Gutt
Af spjöldum sögunnar! -
| Sf. Gutt
Fimm sæti í Meistaradeildinni -
| Sf. Gutt
Er Alisson Becker á förum? -
| Sf. Gutt
Er ferill Mohamed hjá Liverpool búinn? -
| Sf. Gutt
Hugo búinn í aðgerð -
| Sf. Gutt
Gleðilegt sumar! -
| Sf. Gutt
Mestar líkur á að Arne Slot verði áfram!

