| Sf. Gutt

Mestar líkur á að Arne Slot verði áfram!

Mikið hefur mætt á Arne Slot, framkvæmdastjóra Liverpool, á þessu keppnistímabili. Englandsmeistararnir hafa, eftir frábæra byrjun, átt á brattann að sækja og flest gengið liðinu í mót innan vallar sem utan. Nú er staðan sú, fyrir síðustu leikina, að liðið þarf að ná góðum úrslitum til að tryggja sæti í Meistaradeildinni. Sigurinn góði 1:2 á Everton um síðustu helgi strykti stöðu Liverpool en það eru erfiðir leikir eftir. Í raun er óhugsandi að það bregðist að Liverpool nái sæti í Meistaradeildinni!

Stuðningsmenn Liverpool skiptast nokkuð í tvo hópa með hvort þeir vilji hafa Hollendinginn áfram. Sumir telja að hann sé fær um að rétta skútuna og að auki að byggja upp nýtt lið sem þarf að gera. Öðrum finnst óhugsandi að hann sé fær að leysa þau verkefni sem framundan eru. Skiljanlega er Arne borinn saman við Jürgen Klopp. Í raun er það ósanngjarn samanburður. Um er að ræða tvo ólíka menn. Það sem þeir eiga helst sameiginlegt er að báðir hafa gert Liverpool að Englandsmeisturum. 

Frá því seint í haust hefur þeim fjölgað sem hafa, með réttu eða röngu, glatað trúnni á Arne. Ekki er vafi á því að hópurinn sem vill að Arne láti af störfum í sumar er stærri en sá sem vill halda tryggð við hann. Andstaðan við hann, frá þeim sem ekki vilja hann áfram, gæti reynst erfið fái hann traust frá eigendum Liverpool Football Club eftir leiktíðina.

Nokkrir traustir fjölmiðlamenn hafa upp á síðkastið birt fréttir þess efnis að þeir telji sig vita fyrir víst að eigendur Liverpool ætli sér að styðja við bakið á Arne Slot og treysti honum til að leiða liðið á næsta keppnistímabili. Ekkert muni breyta þeirri skoðun þeirra nema þá að allt færi á versta veg og Liverpool næði ekki sæti í Meistaradeildinni á næsta keppnistímabili.

Eigendurnir gera sér fulla grein fyrir því að gengi Liverpool hefur verið langt undir væntingum á þessu keppnistímabili. En þeir telja skýringar á því. Fráfall Diogo Jota og sorgin sem fylgdi því hefur haft mikið að segja. Líklega meira heldur en nokkur gerir sér grein fyrir. Eins hafa meiðsli sett stórt strik í reikninginn. Þó heppni sé hlutlægt fyrirbæri þá verður því ekki á móti mælt að fátt hefur fallið með Liverpool. En þrátt fyrir allt meta eigendurnir stöðuna þannig að Arne sé maður til að gera það sem gera þarf.  

Ef þessir traustu fjölmiðlamenn hafa rétt fyrir sér verður Arne Slot áfram framkvæmdastjóri Liverpool. Hvort sem stuðnignsmenn Liverpool eru sammála því eða ekki verða þeir, sem ekki eru sammála að fylkja sér að baki honum og liðinu. Annað gengur ekki!

 

TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan