Er ferill Mohamed hjá Liverpool búinn?

Mohamed Salah fór meiddur af velli þegar Liverpool vann 3:1 sigur á Crystal Palace á Anfield Road á laugardaginn. Hugsanlega er ferill hans hjá félaginu á enda.
Mohamed var skipt af velli á 59. mínútu. Hann var búinn að vera ógnandi í leiknum en hann settist skyndilega niður á grasið og hélt um lærið sem bendir til þess að hann hafi tognað. Ef tognunin er slæm er hugsanlegt að þetta hafi verið síðasti leikur egypska framherjans með Liverpool. Oft tekur um þrjár vikur að ná sér af tognun aftan í læri. Allt fer eftir því hve slæm tognunin er.
Síðasti leikur Liverpool á keppnistímabilinu verður á Anfield sunnudaginn 24. maí þegar Brentford kemur í heimsókn. Það kemur í ljós þegar nær dregur hvort Mohamed Salah getur tekið þátt í leiknum sem skiljanlega var reiknað með að yrði kveðjuleikur hans með Liverpool.
-
| Sf. Gutt
Vopnahlésdagurinn -
| Mummi
Miðasala á Liverpool leik -
| Sf. Gutt
Vinir og keppinautar! -
| Sf. Gutt
Þurfum bara að mata hann! -
| Sf. Gutt
Allt samkvæmt áætlun! -
| Sf. Gutt
Þrír lykilmenn fjarri góðu gamni! -
| Sf. Gutt
Verður leiknum frestað? -
| Sf. Gutt
Til hamingju! -
| Sf. Gutt
Giovanni Leoni á enn eitthvað í land -
| Sf. Gutt
Merkur áfangi hjá fyrirliðanum!

