| Sf. Gutt

Til hamingju!

Í dag eru 115 ár liðin frá því Don Welsh fæddist. Don er með minna þekktum framkvæmdastjórum Liverpool en hann á sér sinn sess í sögunni eins og aðrir. 

Don Welsh fæddist í Manchester 25. febrúar 1911. Hann hóf feril sinn sem leikmaður með Torquay United en árið 1935 fór hann til Charlton Athletic. Honum vegnaði vel hjá Charlton og varð fyrirliði. Árið 1946 komst Charlton í úrslit FA bikarsins en tapaði. Árið eftir fór liðið aftur í úrslit og nú vannst bikarinn. Don hafði leikið reglulega með Liverpool á stríðsárunum sem gestaleikmaður enda enginn aukvisi í boltanum. Hann lék þrjá landsleiki fyrir hönd Englands og skoraði eitt mark. 

Don hóf feril sinn sem framkvæmdastjóri hjá Brighton & Hove Albion í nóvember 1947. Þá var hann aðeins 36 ára að aldri. Brighton endaði á botni suðurriðils 3. deildar 1947/48 tímabilið en í þá daga féllu lið ekki sjálfkrafa úr deildarkeppninni þrátt fyrir að hafa vermt botnsætið. Brighton bætti sig undir stjórn Welsh og náði 6. og 8. sæti áður en kallið frá Liverpool kom. Hann tók við Liverpool í mars 1951.

Því miður erfði Don Liverpool lið sem var staðnað um miðbik 1. deildar og stjórn sem virtist ekki mjög metnaðarfull. Liðið reiddi sig of mikið á Billy Liddell svo mikið að liðið gekk undir nafninu “Liddellpool”. Jafnvel Liddell gat ekki stöðvað hrun Liverpool niður töfluna og fall niður í 2. deild 1953/54 tímabilið með aðeins níu sigra innanborðs og 28 stig.

Don eyddi miklum peningum í leikmenn á þessum tíma enda átti að endurheimta sæti í efstu deild snúningalaust. En stjórn Liverpool var ekki sannfærð um ágæti hans sem stjóra og honum var vikið úr starfi í lok leiktíðarinnar 1955/56.

Don sagðist hugsanlega vera hættur afskliptum af knattspyrnu þegar hann fór frá Liverpool. Svo var ekki og hann stjórnaði Bournemouth og Wycombe Wanderers. Honum vegnaði ekki sérlega vel í þessum störfum og í lok árs 1964 hætti hann hjá Wycombe. Eftir það vann hann um tíma hjá Charlton. Þar var hann vel metinn alla tíð. 

Don Welsh lést 2. febrúar 1990. 

 

TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan