Gleðilegt sumar!

Liverpool klúbburinn á Íslandi óskar öllum lesendum Liverpool.is, nær og fjær, gleðilegs sumars og sólríkra daga. Um leið skal þakkað fyrir veturinn sem var að líða.
Segja má að veturinn hafi sérstaklega erfiður fyrir Liverpool. Liverpool hafði, þessa leiktíð, titil að verja sem Englandsmeistari. Eftir fimm sigra í fyrstu fimm deildarleikjunum fór að halla undan fæti. Diogo Jota skildi eftir sig stórt skarð innan vallar jafnt sem utan. Nýir leikmenn hafa ekki náði að skila því sem reiknað var með. Óheppni, meiðsli slakir leikir og svo mætti lengi telja.
Nú á fyrsta degi sumars stendur fyrir dyrum að reyna að tryggja sæti í Meistaradeildinni á næstu leiktíð. Í þeirri baráttu má ekkert út af bera. Í raun má ekki gerast að missa af sæti í umræddri deild!
Karlalið Liverpool vinnur ekki titla í sumar. En kvennaliðið gæti gert það. Liðið á sæti í undanúrslitum FA bikars kvenna. Það væri sannarlega gleðilegt að vinna þá keppni!
Vonandi færir sumarið okkur öllum góða daga með blóm í haga og hagfellda tíð til sjós og lands. Við óskum svo þess að tíðarfarið verði með besta móti hjá Liverpool Football Club með hækkandi sól og björtum sumarnóttum
Njótið sumarins!
-
| Sf. Gutt
Í minningu -
| Sf. Gutt
Eins og draumur! -
| Sf. Gutt
Líkt og ólíkt! -
| Sf. Gutt
Til hamingju! -
| Sf. Gutt
Andrew Robertson hylltur! -
| Sf. Gutt
Joe Gomez orðinn góður! -
| Sf. Gutt
Alvaro Arbeloa á Anfield! -
| Sf. Gutt
Af spjöldum sögunnar! -
| Sf. Gutt
Tilkynnt um nýjan aðalstyrktaraðila! -
| Sf. Gutt
Reyni að gera mitt allra besta alla daga!

