Aðalfundur Liverpoolklúbbsins

Aðalfundur Liverpoolklúbbsins á Íslandi verður haldinn í Minigarðinum, miðvikudaginn 20. maí 2026 kl. 17:00.
Aðalfundur fer með æðsta vald í málefnum félagsins og er haldinn í samræmi við 8. gr. laga félagsins.
Dagskrá aðalfundar:
- Kosning fundarstjóra og fundarritara
- Skýrsla stjórnar fyrir yfirstandandi starfsár
- Framlagning endurskoðaðra reikninga
- Umræður um skýrslu stjórnar og reikninga
- Lagabreytingar, löglega fram bornar
- Kosning formanns til tveggja ára
- Kosning þriggja stjórnarmanna til tveggja ára
- Kosning tveggja varamanna til eins árs
- Kosning endurskoðenda
- Ákvörðun um árgjald
- Önnur mál
Mikilvægir skilafrestir:
Framboð til stjórnarkjörs skulu berast stjórn eigi síðar en miðvikudaginn 6. maí 2026 kl. 17:00 á netfangið [email protected].
Tillögur um lagabreytingar skulu berast stjórn eigi síðar en miðvikudaginn 6. maí 2026 kl. 17:00 á netfangið [email protected]
Lagabreytingartillögur verða birtar á www.liverpool.is í síðasta lagi miðvikudaginn 13. maí 2026.
Umboð skulu berast stjórn eigi síðar en miðvikudaginn 13. maí 2026 kl. 17:00, vottuð af tveimur einstaklingum á netfangið [email protected].
Réttindi á fundi:
Atkvæðis- og tillögurétt hafa einungis skuldlausir félagsmenn, sbr. 10. gr. laga félagsins. Félagsmenn geta ekki farið með umboð fyrir fleiri en tvo aðra félagsmenn auk sín sjálfs.
Stjórnin hvetur alla félagsmenn til að mæta og taka þátt í starfi félagsins.
-
| Sf. Gutt
Í minningu -
| Sf. Gutt
Eins og draumur! -
| Sf. Gutt
Líkt og ólíkt! -
| Sf. Gutt
Til hamingju! -
| Sf. Gutt
Andrew Robertson hylltur! -
| Sf. Gutt
Joe Gomez orðinn góður! -
| Sf. Gutt
Alvaro Arbeloa á Anfield! -
| Sf. Gutt
Af spjöldum sögunnar! -
| Sf. Gutt
Tilkynnt um nýjan aðalstyrktaraðila! -
| Sf. Gutt
Reyni að gera mitt allra besta alla daga!

