Það er alltaf pressa hjá Liverpool!
![]()
Það er pressa á Arne Slot um þessar mundir. Landi hans, Dirk Kuyt, segir að það sé alltaf pressa á þeim manni sem er framkvæmdastjóri Liverpool.
.jpg)
,,Þetta breytir engu fyrir Arne. Hann veit fullvel að hann þarf að ná árangri. Pressan á honum byrjaði um leið og hann tók við sem framkvæmdastjóri Liverpool. Það var pressa á honum á fyrsta keppnistímabilinu og það breyttist ekkert þó Úrvalsdeildin hafi unnist. Það er þung krafa á alla sem eru framkvæmdastjórar hér um að ná góðum árangri. Arne má vera stoltur af þeim mjög góða árangri sem hann hefur náð sem framkvæmdastjóri hér á svona stuttum tíma.
,,Hver veit nema að Liverpool fari alla leið í Evrópukeppninni? Það hefur gerst áður að liðinu hefur ekki gengið nógu vel í deildinni en unnið Evróputitil. Ég vona að sagan endurtaki sig."

Dirk veit allt um pressuna sem er hjá Liverpool. ,,Það var pressa á manni sem leikmanni og ég fann vel fyrir henni. Maður þarf að ná góðum árangri hérna. Það eru gerðar kröfur um það hjá félagi eins og Liverpool."

Dirk þekkir vel til Arne. Dirk lék með Feyenoord þar sem Arne var framkvæmdastjóri. Arne gerði liðið að Hollandsmeisturum.
-
| Sf. Gutt
Allt hefur gerst rosalega hratt! -
| Sf. Gutt
Bandaríkjamarkaður er mjög mikilvægur! -
| Sf. Gutt
Af leikmannamálum -
| Sf. Gutt
Ætlum að vera tilbúnir í fyrsta leik! -
| Sf. Gutt
Leikjatilfærslur -
| Sf. Gutt
Mikið verk fyrir höndum! -
| Sf. Gutt
Drjúg leið að landi! -
| Sf. Gutt
Ronald Araujo fenginn að láni! -
| Sf. Gutt
Ég reyni að gera mitt besta! -
| Sf. Gutt
Þurfum að bæta margt!

