| Sf. Gutt

Ronald Araujo fenginn að láni!

Ronald Araujo, sem er miðvörður frá Úrúgvæ, hefur verið fenginn að láni. Hann verður hjá Liverpool á leiktíðinni sem í hönd fer.

Ronald er fæddur í Rivera í Úrúgvæ 7. mars 1999. Hann hóf feril sinn hjá Rentistas og spilaði með liðinu 2016 til 2017. Liðið var í annarri deild en hann vakti athygli og fór árið 2017 til Boston River sem átti sæti í efstu deild. Ronald var aðeins tvær leiktíðir þar áður en Barcelona keypti hann. Hann spilaði tvö fyrstu keppnistímabil sín á Spáni með með B liði en á leiktíðinni 2019/20 komst hann í aðalliðið. Ronald hefur frá þeirri leiktíð spilað reglulega í vörn Barcelona. Hann var skipaður fyrirliði Barcelona fyrr á þessu ári. 

Úrúgvæinn hefur þrívegis orðið spænskur meistari 2022/23, 2024/25 og 2025/26. Hann varð bikarmeistari 2020/21 og 2024–25. Stórbikar Spánar vann hann 2023, 2025 og 2026. 

Ronald lék fyrst með aðallandsliði Úrúgvæ haustið 2020. Síðan þá hefur hann spilað 27 landsleiki og skorað einu sinni. Hann var valinn í landliðið fyrir HM núna í sumar en lék ekkert vegna meiðsla. 

Ronald er stór, sterkur og mjög góður skallamaður. Hann er reyndur leikmaður og hefur leikið með stórliði. Hann ætti því að styrkja liðshóp Liverpool þó nokkuð. Ekki spillir að hann býr yfir leiðtogahæfileikum því hann hefur verið fyrirliði Barcelona. Það segir sitt. 

Koma hans til Liverpool var óvænt og kannski er svolítið undarlegt að Barcelona vilji lána hann. Það er spurning um ástæðu þess. En vörn Liverpool er heldur þunnskipuð og því stórgott að fá hann!

 

TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan