| Sf. Gutt

Drjúg leið að landi!

Nokkrir leikmenn Liverpool eru á meiðslalistanum illræmda. Þrír eiga lengst í land með að verða leikfærir eftir langvinn og erfið meiðsli. 

Um er að ræða þá Conor Bradley, Hugo Ekitike og Giovanni Leoni. Conor meiddist illa á hné í janúar, Hugo sleit hásin í apríl og Giovanni varð fyrir klossbandameiðslum í september í fyrra. Þeir verða ekki búnir að ná sér fyrr en eftir nokkra mánuði. Giovanni, sem meiddist í sínum fyrsta leik með Liverpool, verður hugsanlega fyrstur þeirra til að ná sér. Líklega verður komið nýtt ár þegar Conor og Hugo geta farið að æfa af krafti á nýjan leik.  

Nú er að vona að þeir þremenningar nái sér að fullu. Það er fyrir öllu!

 

TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan