Mikið verk fyrir höndum!

Steven Gerrard segir að Andoni Iraola eigi mikið verk fyrir höndum hjá Liverpool við að koma liðinu í betra stand en það var í á síðustu leiktíð. Steven finnst að hann sé spennandi kostur í starfið.
,,Mér líst alveg vel á hann og allt þetta. En ég veit alveg að mikil áskorun bíður hans. Mér fannst Liverpool vera óravegu frá því sem ásættanlegt var á síðasta keppnistímabili. Við verðum að vera hreinskilin og horfast í augu við að liðið var víðsfjarri settu marki."
,,Það þarf að taka liðshópinn í gegn og koma betra jafnvægi á hann. Við þurfum að fá leikmenn, sem hafa verið meiddir, út á völlinn. Eins verða lykilmenn í liðinu að sýna almennilega hvað í þeim býr. Nýi framkvæmdastjórinn hefur því sannarlega mikið verk að vinna. En mér finnst mjög spennandi að fá hann í starfið. Það er ekki spurning að ég styð hann."
Það sem Steven Gerrard segir hér er hárrétt. Vonandi nær Andoni tökum á verkefninu sem bíður hans!
-
| Sf. Gutt
Leikjatilfærslur -
| Sf. Gutt
Drjúg leið að landi! -
| Sf. Gutt
Ronald Araujo fenginn að láni! -
| Sf. Gutt
Ég reyni að gera mitt besta! -
| Sf. Gutt
Þurfum að bæta margt! -
| Sf. Gutt
Mohamed Salah gengur til liðs við Trabzonspor! -
| Sf. Gutt
Rétt skef! -
| Sf. Gutt
Vill láta meira til sín taka! -
| Sf. Gutt
Nýr varabúningur vígður! -
| Sf. Gutt
Fleiri æfingaleikir

