| Sf. Gutt

Ætlum að vera tilbúnir í fyrsta leik!

Alexander Isak segir að hann og félagar hans ætli að vera tilbúnir í slaginn þegar kemur að fyrsta leiknum á keppnistímabilinu. Hann segir að sér líði vel og hann stefnir á að láta til sín taka.  

,,Mér líður vel. Það vantar ekki. Hver leikur á vonandi eftir að auka úthaldið mitt. Ég er að vinna í bæta úthaldið. Undirbúningstímabilið er til að byggja mann upp. Við verðum allir að vinna að því að byggja okkur vel upp."

,,Mér finnst góður andi í hópnum og við erum að leggja hart að okkur við að láta allt ganga upp. Við ætlum okkur að vera tilbúnir í slaginn þegar kemur að fyrsta leik."

Fyrsti leikur Liverpool á leiktíðinni verður einmitt næsta sunnudag þegar Rauði herinn mætir Newcastle United á útivelli. Ljóst er að mikil athygli verður á sænska landsliðsmanninum í þeim leik. Mikið fjaðrafok fylgdi vistaskiptum hans þegar hann yfirgaf Newcastle og fór til Liverpool fyrir metfé. Allt gekk á afturfótunum á síðustu leiktíð en það gengur bara betur næst!

 

TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan