Þurfum að bæta margt!

Florian Wirtz segir að hann hafi alls ekki verið ánægður með sig og árangur Liverpool á síðasta keppnistímabili. Hann segir að margt þurfi að bæta fyrir komandi sparktíð.
,,Auðvitað var ég alls ekki ánægður. Ég meina með keppnistímabilið. Ég var alls ekki óánægður alla daga þegar ég var að mæta á æfingar. En ég held að við höfum allir reiknað með miklu betri árangri á síðasta keppnistímabili."
,,Mér finnst að við verðum á byrjunarreit þegar þetta keppnistímabil byrjar. Líka núna þegar við erum í þessum æfingabúðum. Þetta er ný byrjun. Við þurfum að bæta margt á þessu keppnistímabili og ég er mjög spenntur fyrir annarri leiktíð minni hérna."

Florian var keyptur fyrir metfé fyrir ári en hann stóð alls ekki undir væntingum á fyrsta keppnistímabili hjá Liverpool. Hann spilaði 49 leiki, skoraði sjö mörk og lagði upp einu meira. Það verður að segjast að búist var við meiru. Nú er að sjá hovrt Þjóðverjinn nær sér betur á strik á leiktíð númer tvö.
-
| Sf. Gutt
Leikjatilfærslur -
| Sf. Gutt
Nýr varafyrirliði -
| Grétar Magnússon
Gluggadagur - hvað er títt? -
| Grétar Magnússon
Stefan Bajcetic seldur til Celta Vigo -
| Grétar Magnússon
Barcola staðfestur -
| Grétar Magnússon
Leikdagar í Meistaradeild -
| Grétar Magnússon
Þriðja treyjan kynnt til leiks -
| Grétar Magnússon
Stórleikur í Deildarbikar -
| Grétar Magnússon
Dregið í Meistaradeild -
| Sf. Gutt
Allt hefur gerst rosalega hratt!

