Af leikmannamálum

Það styttist í fyrsta deildarleik Liverpool á nýju leiktíðinni. Fram til þessa hafa aðeins tveir nýir menn menn verið keyptir og einn fenginn að láni.
Liverpool hefur fjárfest í þeim Jeremy Jacquet, Victor Munoz og Ifeanyi Ndukwe. Ifeanyi spilar reyndar ekkert með Liverpool á leiktíðinni því hann er ekki með atvinnuleyfi á Englandi. Ronald Araujo kom svo sem lánsmaður. Þrír þeir sem fyrst eru nefndir eru ungir og reynslulitlir. Ronald er mjög reyndur sem er gott. Það má svo segja að Harvey Elliott sé eins og nýr maður. Hann er auðvitað kominn heim eftir misheppnaða lásdvöl hjá Aston Villa.
Sjö leikmenn eru farnir. Fimm hafa verið lykilmenn síðustu árin en tveir hafa lítið komið við sögu. Það má því segja að leikmannahópurinn hafi veikst. Mohamed Salah, Andrew Robertson, Ibrahima Konaté og Curtis Jones eiga eftir að skilja stór skörð eftir sig.
Liverpool hefur svo sem ekki verið orðað við mjög marga leikmenn í sumar. Núna eru þeir Bradley Barcola og Ibrahim Mbaye helst nefndir. Báðir eru framherjar og spila með Paris Saint Germain. Bradley er mjög góður og myndi styrkja Liverpool mikið. Hann er hátt metinn hjá Paris og verður rándýr verði af vistaskiptum.
Svo er spurning hvort fleiri leikmenn fari frá Liverpool. Það verður að teljast ólíklegt að fleiri verði seldir því liðshópurinn er ekki stór. Talið er að Tottenham Hotspur hafi áhuga á Cody Gakpo. Hugsanlega verður hann til sölu. Sama má segja um Federico Chiesa. Einhver lið á Ítalíu munu vilja fá hann í sínar raðir.
Það styttist ekki bara í fyrsta leik. Það styttist nefnilega líka í að lokað verði fyrir félagaskipti. Við sjáum hvað setur!
-
| Sf. Gutt
Ætlum að vera tilbúnir í fyrsta leik! -
| Sf. Gutt
Leikjatilfærslur -
| Sf. Gutt
Mikið verk fyrir höndum! -
| Sf. Gutt
Drjúg leið að landi! -
| Sf. Gutt
Ronald Araujo fenginn að láni! -
| Sf. Gutt
Ég reyni að gera mitt besta! -
| Sf. Gutt
Þurfum að bæta margt! -
| Sf. Gutt
Mohamed Salah gengur til liðs við Trabzonspor! -
| Sf. Gutt
Rétt skef! -
| Sf. Gutt
Vill láta meira til sín taka!

