| Jón Óli Ólafsson

Rafael Benitez heiðraður

Á mánudagskvöldið var lýst kjöri á "Íþróttapersónuleika Merseyside-svæðisins". Í raun er þetta mesta viðurkenning sem hægt er að fá í Liverpoolborg á sviði íþrótta. Valið er ekki bundið við afreksmenn í knattspyrnu þótt oftar en ekki verði þeir fyrir valinu. Það eru lesendur dagblaðsins Liverpool Echo sem kjósa ár hvert. Þetta var í þrítugasta og fjórða skipti sem kjörið fer fram. Howard Kendall, þá fyrirliði Everton, var sá fyrsti sem var kjörinn árið 1972. Árið eftir var Ian Callaghan fyrir valinu. Eftirtaldir leikmenn og framkvæmdastjórar Liverpool hafa verið valdir: Ian Callaghan, Kevin Keegan (tvisvar), Ray Clemence, Kenny Dalglish (tvisvar), Bruce Grobbelaar, Ian Rush, John Barnes, Robbie Fowler, Steve McManaman, Michael Owen (1998), Steven Gerrard (2000), Gerard Houllier (2002) og Jamie Carragher (2005).

Þeir sem tilnefndir voru í ár voru þessir: Rafa Benitez (Liverpool), Steven Gerrard (Liverpool), Tim Cahill (Everton), Beth Tweddle (Fimleikar), Jamie Lyon (Rúgbý) og Nick Dougherty (Golf).  Rafael Benitez varð fyrir valinu hjá Liverpool Echo að þessu sinni. Er óhætt að segja að hann sé vel að þessari viðurkenningu kominn.

"Ég er mjög stoltur að hafa fengið þessa viðurkenningu. En að vera hér og ávarpa ykkur er erfiðra heldur en hálfleiks ræðan í Istanbul. Ég er stoltur af því að vera framkvæmdarstjóri Liverpool. Þessum verðlaunum deili ég með konu minni, Montse, starfsfólki og leikmönnum. án þeirra væri ég ekki hér." sagði Rafael þegar hann ávarpaði gesti á Crowne Plaza Hóteli þar sem verðlaunahátíðin fór fram. Kona Rafael er með honum hér á myndinni.

Mörg þekkt andlit voru gestir á þessari verðlaunahátíð Liverpool Echo. Aðstoðarmaður Rafael Pako Ayesteran var á staðnum ásamt Liverpool goðsögnunum Roger Hunt, Tommy Smith, Ian Callaghan, Phil Thompson, John Aldrigde, Ronnie Whelan, David Fairclough og Gary Gillespie.

Fyrirliði Liverpool Steven Gerrard var einnig heiðraður en hann fékk Bill Shankly minningarverðlaunin. Phil Thompson afhenti honum verðlaunin. Steven varð þar með sá yngsti til að hljóta þessi verðlaun en þau eru venjulega veitt leikmanni sem hefur lagt skóna á hilluna.

TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan