Ibrahima Konate heldur á braut!

Ibrahima Konate heldur á braut. Þetta var tilkynnt í dag af honum sjálfum og á Liverpoolfc.com. Hann og Liverpool náðu ekki samkomulagi um nýjan samning. Franski miðvörðurinn fer því á frjálsri sölu.

Ibrahima kom til Liverpool frá Red Bull Leipzig 2021 en þar hafði hann verið frá því 2017. Hann byrjaði atvinnuferil sinn hjá franska liðinu Sochaux. Ibrahima var fyrst í unglingaliði Paris FC.

Ibrahima gekk vel hjá Liverpool en meiðsli stríddu honum á köflum. Hann náði góðu sambandi við Virgil van Dijk í hjarta varnar Liverpool. Besta keppnistímabil hans var trúlega 2024/25 þegar Liverpool varð Englandsmeistari.
Ibrahima Konate átti mjög erfitt uppdráttar á þessu keppnistímabili og þá sérstaklega fyrir áramót. Kannski höfðu veikindi föður hans áhrif en hann lést í janúar. Eftir það náði Ibrahima að leika betur. Segir það kannski sína sögu um hvers vegna honum gekk ekki betur innan vallar.
Allt frá því í fyrra hefur verið fjallað um samningaviðræður Ibrahima og Liverpool. Þær gengu upp og niður að því er virtist. Um tíma leit út fyrir að Frakkinn væri að láta samninginn líða svo hann gæti farið frítt. Þá var hann orðaður við Real Madrid og Paris Saint Germain. Síðustu vikurnar leit allt út fyrir nýjan samning en nú allt í einu er ljóst að svo verður ekki. Hermt var að Ibrahima hefði viljað hærri bónusgreiðslur og þegar ekki var gengið að kröfum hans í því lauk samningaviðræðum. Verst er auðvitað að Liverpool hafi ekki getað selt Ibrahima en í raun var félagið í erfiðri stöðu þegar tilboðum var lengst af neitað.

Ibrahima lék 183 leiki með Liverpool. Hann skoraði sjö mörk og lagði upp fjögur. Hann hefur leikið 27 landsleiki fyrir Frakkland og fékk silfur á HM 2022. Næsta víst er að hann verður í HM hóp Frakkalands fyrir Heimsmeistarakeppnina núna í sumar.

Ibrahima varð Englandsmeistari í fyrra. Áður hafði hann unnið FA bikarinn 2022 og Deildarbikarinn sama ár og svo aftur 2024. Hann var Skjaldarhafi með Liverpool 2022.
Liverpool klúbburinn á Íslandi þakkar Ibrahima Konate framlag sitt til Liverpool og óskar honum alls góðs í framtíðinni.
-
| Sf. Gutt
Af kvennaliðinu -
| Sf. Gutt
Andoni Iraola talinn líklegur arftaki Arne Slot! -
| Sf. Gutt
Arne Slot yfirgefur Liverpool! -
| Sf. Gutt
Í minningu -
| Sf. Gutt
Er Curtis Jones á förum? -
| Sf. Gutt
Hvað getur gerst? -
| Sf. Gutt
Nýir búningar kynntir! -
| Sf. Gutt
Aftur til fortíðar! -
| Sf. Gutt
Mohamed getur klárað keppnistímabilið! -
| Sf. Gutt
Reikna með að verða áfram hérna!

