Í minningu
Í dag er 41 ár liðið frá því 39 áhorfendur létust á Heysel leikvanginum í Brussel í Belgíu. Harmleikurinn átti sér stað áður en Liverpool og Juventus mættust í úrslitaleik Evrópukeppni meistaraliða 29. maí 1985. Ólæti urðu milli hópa stuðningsmanna Liverpool og Juventus á áhorfendastæðunum er þar hafði stuðningsmönnunum verið úthlutað stæðum hlið við hlið. Því miður hrundi veggur yfir á svæðið þar sem stuðningsmenn Juventus voru staðsettir með hörmulegum afleiðingum.
Ekki skal dregið úr hlut áhorfenda sem áttu hlut að þeim hluta atburðarásarinnar sem varð til þess að 39 létust. En líkt og á Hillsborough báru framkvæmdaaðilar leiksins mikla ábyrgð á hvernig fór. Leikvangurinn var orðinn gamall og lélegur og telja margir að leikurinn hefði aldrei átt að fara þar fram. Eins var algjörlega óskiljanlegt að stuðningsmönnum liðanna skyldi vera úthlutað sömu stúkunni með litlum og lélegum skilrúmum. Öryggisgæsla þótti líka ónæg og illa skipulögð.
Mikil rannsókn fór fram eftir harmleikinn. Á fjórða tug voru handteknir. Ákærur voru birtar og 14 stuðningsmenn Liverpool voru dæmdir í þriggja ára fangelsi fyrir manndráp.
Ensk knattspyrnulið voru dæmd í bann og léku ekki í Evrópukeppni næstu fimm keppnistímabil. Liverpool fékk lengra bann og mátti ekki taka þátt í Evrópukeppni í sex leiktíðir.
Auk þeirra sem létust slösuðust 600 manns. Af þeim sem létust voru 32 frá Ítalíu, fjórir Belgar, þrír Frakkar og einn Norður Íri.
Harmleiksins er jafnan minnst, á þessum degi, í Brussel, Liverpool og Tórínó. Í dag var nýtt minnismerki afhjúpað á Anfield Road um fólkið sem fórst á Heysel leikvanginum. Bill Hogan forstjóri Liverpool og Ian Rush, sem lék með Juventus á leiktíðinni 1987/88, fluttu ávörp. Tveir fulltrúar frá Juventus voru viðstaddir athöfnina. Blómsveigar voru lagðir við minnismerkið.

Minnismerkið er úr hvítum marmara sem unninn var í námu á Ítalíu. Á minnismerkinu eru tveir treflar með félagsmerkjum Liverpool og Juventus bundnir saman. Nöfn þeirra sem fórust eru letruð á minnismerkið. Mynd af nýja minnismerkinu er hér að ofan.
Blessuð sé minning þeirra 39 sem létust í Brussel. Hér að neðan eru nöfn þeirra.
Hvíl í friði.
-
| Sf. Gutt
Er Curtis Jones á förum? -
| Sf. Gutt
Hvað getur gerst? -
| Sf. Gutt
Nýir búningar kynntir! -
| Sf. Gutt
Aftur til fortíðar! -
| Sf. Gutt
Mohamed getur klárað keppnistímabilið! -
| Sf. Gutt
Reikna með að verða áfram hérna! -
| Sf. Gutt
Juventus vill fá Alisson! -
| Sf. Gutt
Hvað gerist eftir keppnistímabilið? -
| Sf. Gutt
Úr leik! -
| Sf. Gutt
Giorgi Mamardashvili enn meiddur

