| Grétar Magnússon

Iraola tekur við stjórnartaumunum

Í dag var formlega staðfest að Spánverjinn Andoni Iraola hefur tekið við sem nýr knattspyrnustjóri félagsins.

Iraola, sem er 43 ára, kemur til Liverpool eftir þrjú ár sem stjóri Bournemouth þar sem hann náði mjög góðum árangri. Eins og flestir vita voru Bournemouth ekki langt frá Meistaradeildarsæti fyrir nokkrum vikum síðan en þeir enduðu sæti fyrir neðan Liverpool og verða í Evrópukeppni í fyrsta sinn í sögu félagsins á næsta tímabili.

,,Ég er spenntur, mjög spenntur", sagði hann í viðtali við opinbera heimasíðu félagsins. ,,Augljóslega þekkir maður Liverpool, þetta er stórt félag, risastórt í rauninni og eitt það stærsta í heimi. En tilfinningin innra með mér er að ég vil skilja félagið betur, mér hefur alltaf þótt þetta sérstakt félag."

,,Það þarf í rauninni ekki mikið til laðast að félaginu, Liverpool er Liverpool. Andrúmsloftið her er magnað, stuðningsmennirnir, félagið, leikmennirnir, tækifæri fyrir mig að þjálfa heimsklassa leikmenn, tækifæri til að berjast um titla. Ég held að þetta geti ekki verið Meira aðlaðandi, að minnsta kosti er erfitt að finna eitthvað sambærilegt. Ég er því auðvitað mjög spenntur fyrir því að byrja vinnu mína hér."

Iraola er baski en héraðið er í norðurhluta Spánar. Eins og gefur að skilja spilaði hann mestallann sinn feril með Athletic Bilbao eða alls 12 tímabil og yfir 500 leiki. Hann spilaði sjö landsleiki fyrir Spánverja áður en hann lauk svo ferlinum með New York City FC árið 2016. Hann hóf svo knattspyrnustjóraferilinn árið 2018 þegar hann tók við AEK Larnaca og vann kýpverska ofurbikarinn með félaginu. Eftir það tók hann við Mirandes á Spáni sem þá léku í næst efstu deild en tók svo við Rayo Vallecano árið 2020 og leiddi þá upp í La Liga á sínu fyrsta tímabili.

Þrem árum síðar varð hann stjóri Bournemouth þar sem hann hefur svo sannarlega vakið athygli fyrir leikstíl liðsins og árangur. Liðið var m.a. taplaust í síðustu 18 leikjum tímabilsins og tryggði sér Evrópusæti eins og áður sagði

Við bjóðum Iraola velkominn til starfa hjá Liverpool FC !
TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan