Munnlegt samkomulag frágengið!

Traustir fjölmiðlar fluttu fréttir þess efnis nú undir kvöldið að forráðamenn Liverpool hefðu náð munnlegu samkomulagi við spænska þjálfarann Andoni Iraola um að hann taki við sem yfirþjálfari Liverpool. Talið er að Andoni skrifi undir tveggja ára samning á næstu dögum.
Andoni, sem verður 44 ára núna 22. júní, hefur hug á að fá aðstoðarmenn sína, sem hann vann með hjá Bournemouth, til liðs við sig hjá Liverpool. Um er að ræða þá Tommy Elphick og Shaun Cooper og hugsanlega fleiri. Nefnt hefur verið að Thiago Alcantara, fyrrum leikmaður Liverpool, gæti verið fenginn í þjálfaraliðið. Hann spilaði með Liverpool frá 2020 til 2024. Hann lagði þá skóna á hilluna og fór að þjálfa hjá Barcelona.
Andoni Iraola hætti sem framkvæmdastjóri Bournemouth eftir að Úrvalsdeildinni lauk. Hann stýrði liðinu í þrjár leiktíðir og kom liðinu í Evrópudeildina núna í vor. Það verður áhugavert að sjá hvernig honum tekst upp hjá Liverpool verði hann ráðinn þangað. Telja má næsta víst að svo verði.
-
| Sf. Gutt
George Gillett látinn -
| Sf. Gutt
Fyrir og eftir! -
| Sf. Gutt
Til hamingju! -
| Sf. Gutt
Í minningu -
| Sf. Gutt
Eins og draumur! -
| Sf. Gutt
Líkt og ólíkt! -
| Sf. Gutt
Til hamingju! -
| Sf. Gutt
Andrew Robertson hylltur! -
| Sf. Gutt
Joe Gomez orðinn góður! -
| Sf. Gutt
Alvaro Arbeloa á Anfield!

