Origi leggur skóna á hilluna
Divock Origi hefur tilkynnt að hann hefur lagt skóna á hilluna. Belginn skoraði nokkur ógleymanleg mörk á ferli sínum hjá Liverpool.
Origi er aðeins 31 árs gamall en hefur ákveðið að segja þetta gott á sínum atvinnumannaferli. ,,Tilgangi mínum sem leikmaður í knattspyrnu er náð," skrifaði Origi á samfélagsmiðla. ,,Ég hef upplifað mína æskudrauma að spila á stærsta sviðinu og vinna stærstu bikarana. Ég er þakklátur Guði fyrir þetta allt."
Origi hóf ferilinn í heimalandi sínu, Belgíu hjá Genk og var keyptur til Liverpool sumarið 2014 frá franska félaginu Lille en var áfram í Frakklandi fyrsta árið. Hans fyrsta tímabil 2015-16 spilaði hann undir stjórn Brendan Rodgers og Jürgen Klopp og skoraði 10 mörk en meiðsli settu strik í reikninginn á tímabilinu. Tímabilið þar á eftir skoraði hann 11 mörk og hjálpaði liðinu að komast aftur í Meistaradeild Evrópu. Hann var svo lánaður næsta tímabil til Wolfsburg í Þýskalandi og margir töldu feril hans hjá Liverpool ekki eiga mikið eftir þegar hann sneri til baka úr því láni.
En svo fór ekki sem betur fer og allir muna eftir marki á 96. mínútu gegn Everton á Anfield í desember 2018, það má segja að þar hafi Belginn heldur betur unnið sig inní hjörtu stuðningsmanna. Origi var alls ekki hættur að skora mikilvæg mörk og þegar Barcelona mættu á Anfield í seinni leik undanúrslita í Meistaradeild vorið 2019 var Origi í byrjunarliðinu. Liverpool þurfti að snúa við 3-0 tapi í fyrri leiknum og voru m.a. án Mohamed Salah og Roberto Firmino í leiknum en Origi steig upp og skoraði fyrsta mark leiksins strax á 7. mínútu. Hann kórónaði svo frábæran leik sinn og liðsins í heild með því að skora fjórða mark leiksins eftir sögufræga hornspyrnu Trent Alexander-Arnold sem var tekin snögglega.
Origi kom svo inná í úrslitaleiknum í Madrid gegn Tottenham. Hann skoraði seinna markið í 2-0 sigri og ef einhverjir voru að efast um að maðurinn væri ekki orðin goðsögn í huga stuðningsmanna efaðist enginn eftir þetta mark. Tímabilið 2019-20 spilaði Origi alls 42 leiki og skoraði sex mörk, þar á meðal tvö gegn Everton og félagið endaði tímabilið á því að vinna deildina, heimsmeistarakeppni félagsliða og ofurbikar Evrópu.

Það var alltaf hægt að treysta á framlag frá Origi þó svo að hann væri yfirleitt á bekknum og endaði hann feril sinn hjá Liverpool sumarið 2022 og var þá búinn að bæta við deildarbikartitli og FA bikarnum í safnið. Alls spilaði hann 175 leiki og skoraði 41 mark fyrir Liverpool.
Origi gekk til liðs við AC Milan á Ítalíu og spilaði með þeim fram til desember á síðasta ári. Var hann m.a. lánaður til Nottingham Forest tímabilið 2023-24.
Hann spilaði alls 32 landsleiki fyrir Belga og skoraði þrjú mörk.
,,Til aðdáenda minna um heim allan sem hjálpuðu mér að skína, allar mögnuðu stundirnar, öll mörkin, öll sagan sem við sköpuðum verður alltaf sameign okkar. Til allra félaga sem ég var hjá, allra þjálfaranna og liðsfélaganna sem stóðu mér við hlið, takk fyrir. Þið mótuðuð mig sem manneskju innan vallar sem utan."
,,Að hafa spilað fyrir Belgíu, þjóðina mína en einnig haldið fast í ræturnar í Keníu, var ánægjulegt. Og til fjölskyldu minnar og þeirra sem standa mér næst, án ykkar væri ég ekki sá sem ég er í dag. Ég er að eilífu þakkátur. Takmarkinu er náð, núna sinni ég minni næstu köllun."

-
| Grétar Magnússon
Iraola tekur við stjórnartaumunum -
| Sf. Gutt
Liverpool Football Club á afmæli í dag! -
| Sf. Gutt
Munnlegt samkomulag frágengið! -
| Sf. Gutt
Af kvennaliðinu -
| Sf. Gutt
Ibrahima Konate heldur á braut! -
| Sf. Gutt
Andoni Iraola talinn líklegur arftaki Arne Slot! -
| Sf. Gutt
Arne Slot yfirgefur Liverpool! -
| Sf. Gutt
Í minningu -
| Sf. Gutt
Er Curtis Jones á förum? -
| Sf. Gutt
Hvað getur gerst?

