| Sf. Gutt

Af kvennaliðinu

Keppnistímabili kvennaliða á Englandi lauk um helgina. Liverpool náði langt í bikarkeppnunum en í deildinni gekk því miður miklu síður.

Liverpool féll úr leik í átta liða úrslitum Deildarbikarsins eftir að hafa tapað 1:9 heima fyrir Chelsea. Algjör niðurlæging. Í FA bikarnum komst liðið alla leið í undanúrslit en tapaði á grátlegan hátt 2:3 í viðbótartíma fyrir Brighton and Hove Albion. Chelsea vann Deildarbikarinn eftir 2:0 sigur á Manchester United. Manchester City tryggði sér FA bikarinn eftir að hafa unnið Brighton af öryggi 4:0. Um leið vann City Tvennu því liðið vann líka deildina. Liðið fékk 55 stig og var fjórum stigum á undan Arsenal. 

Hér verður greint frá síðustu deildarleikjum Liverpool á leiktíðinni. Um miðjan mars vann Liverpool Leicester City 2:0. Í næsta leik gerði Liverpool markalasust jafntefli í Brighton. Síðasti leikurinn í mars var sannarlega gleðilegur en þá vann Liverpool Everton 2:3 á Goodison Park.

Liverpool spilaði bara einn deildarleik í apríl. West Ham United kom í heimsókn. Ekkert gekk upp og Liverpool mátti þola 0:1 tap á heimavelli. 

Tveir deildarleikir voru í maí. Báðir gegn tveimur efstu liðunum. Liverpool tapaði naumlega 1:0 fyrir toppliði Manchester City. Eina markið kom í viðbótartíma og fór langt með að tryggja City titilinn. Seinni leikurinn í maí var gegn Arsenal á Anfield Road. Arsenal komst í 0:3 fyrir leikhlé. Zara Shaw lagaði stöðuna í síðari hálfleik en þá var allt um seinan. Kvennaliði Liverpool gengur jafnan illa á Anfield. Alls komu 15.047 áhorfendur á leikinn sem er mjög gott. 

Liverpool lauk keppni í næst neðsta sæti með 17 stig. Liverpool vann ekki sinn fyrsta deildarleik fyrr en í janúar og svo aðeins þrjá í viðbót. Liðið gerði fimm jafntefli og tapaði 13. Langt frá því niðurstaða sem telst ásættanleg. Leicester City féll með níu stig. 

Vonandi gengur kvennaliðinu betur á næsta keppnistímabili. Það verður eiginlega að gera það!

 

TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan