Andoni Iraola talinn líklegur arftaki Arne Slot!

Flestir fjölmiðlamenn telja Spánverjann Andoni Iraola líklegastan sem arftaka Arne Slot. Andoni var framkvæmdastjóri Bournemouth þrjú síðustu keppnistímabil en hætti þar í lok leiktíðarinnar. Hann tók við Kirsuberjastrákunum 2023 og byggði upp mjög gott lið.
Andoni hóf þjálfaraferilinn 2018 þegar hann þjálfaði AEK Larnaca á Kýpur. Hann vann stórbikar Kýpur með liðinu. Eftir eitt keppnistímabil fór hann til Spánar þar sem hann þjálfaði Mirandés í eina leiktíð. Andoni tók svo við Rayo Vallecano sumarið 2020 og þjálfaði liðið í þrjú keppnistímabil þar til hann tók við Bournemouth. Hann skildi við liðið eftir að hafa komið því í Evrópudeildina eftir að hafa náð sjötta sæti í Úrvalsdeildinni.
Hvernig sem það var þá er Andoni Iraola nú talinn langlíklegastur til að verða næsti framkvæmdastjóri Liverpool. Tveir aðrir hafa aðeins verið nefndir. Það eru þeir Sebastian Hoeness sem þjálfar Stuttgart í Þýskalandi og Pierre Sage sem þjálfar franska liðið Lens.
Í dag telja fjölmiðlamenn sig hafa heimildir fyrir því að forráðamenn Liverpool muni hefja formlegar viðræður við Andoni hvern næsta dag. Richard Hughes, íþróttastjóri Liverpool, þekkir Andoni mjög vel en þeir unnu saman hjá Bouremouth. Það ætti fátt að koma í veg fyrir að þeir nái saman um að Andoni taki við af Arne Slot.
-
| Sf. Gutt
Arne Slot yfirgefur Liverpool! -
| Sf. Gutt
Í minningu -
| Sf. Gutt
Er Curtis Jones á förum? -
| Sf. Gutt
Hvað getur gerst? -
| Sf. Gutt
Nýir búningar kynntir! -
| Sf. Gutt
Aftur til fortíðar! -
| Sf. Gutt
Mohamed getur klárað keppnistímabilið! -
| Sf. Gutt
Reikna með að verða áfram hérna! -
| Sf. Gutt
Juventus vill fá Alisson! -
| Sf. Gutt
Hvað gerist eftir keppnistímabilið?

