Er Curtis Jones á förum?

Flest bendir til þess að Curtis Jones sé á förum frá Liverpool. Hann hefur verið orðaður við brottför síðustu vikur. Ekki er alveg ljóst um ástæður þess að hann vilji ekki vera lengur hjá Liverpool. Hermt er að honum hafi ekki verið boðinn nýr samningur. Eins telja sumir að hann sé ekki sáttur við að hann hafi oft þurft að spila stöðu bakvarðar á leiktíðinni.
Ítölsku meistararnir Inter Milan hafa mikinn áhuga á að fá Curtis Jones í sínar raðir. Eins og munar einhverju í verðlagningu á Curtis. Það er hvað Liverpool vill fá í sinn hlut og hvað forráðamenn Inter vilja borga.

Curtis Jones er alinn upp hjá Liverpool. Hann spilaði sinn fyrsta leik með Liverpool í janúar 2019. Hann er búinn að spila 228 leiki með Liverpool. Hann hefur skorað 22 mörk og lagt upp jafn mörg.
Við sjáum hvað setur.
-
| Sf. Gutt
Hvað getur gerst? -
| Sf. Gutt
Nýir búningar kynntir! -
| Sf. Gutt
Aftur til fortíðar! -
| Sf. Gutt
Mohamed getur klárað keppnistímabilið! -
| Sf. Gutt
Reikna með að verða áfram hérna! -
| Sf. Gutt
Juventus vill fá Alisson! -
| Sf. Gutt
Hvað gerist eftir keppnistímabilið? -
| Sf. Gutt
Úr leik! -
| Sf. Gutt
Giorgi Mamardashvili enn meiddur -
| Sf. Gutt
Skipt um skoðun!

