Arne Slot yfirgefur Liverpool!

Nú rétt í þessu birtist tilkynning frá Liverpool Football Club, á Liverpoolfc.com, þess efnis að Arne Slot verði ekki áfram yfirþjálfari Liverpool. Hann lætur nú þegar af störfum. Vinna við að finna nýjan framkvæmdastjóra er nú þegar komin í gang.

Í yfirlýsingunni segir meðal annars. ,,Það segir sér sjálft að það var erfitt fyrir okkur, sem félag, að taka þessa ákvörðun. Arne hefur haft mikil og góð áhrif á Liverpool FC á þeim tíma sem hann hefur verið hjá okkur. Eins hefur hann, frá því hann kom hingað, fært félaginu og stuðningsmönnunum velgengni."
,,Við viljum nýta tækifærið og þakka Arne fyrir allt sem hann gerði í þágu félagsins. Sem þjálfari færði hann knattspyrnufélaginu 20. deildartitil þess. Fyrir það verður hans ætíð minnst í sögu félagsins. Það afrek var enn merkilegra fyrir þær sakir að hann vann það á sínu fyrsta keppnistímabili. Afrekið var afrakstur framúrskarandi þjálfunnar og leiðtogahæfileika á hverjum einasta degi."
,,Hann leiddi líka félagið í gegnum ólýsanlega erfiða tíma í kjölfar fráfalls Diogo Jota. Samúðin og manngæskan sem hann sýndi á þeim erfiðu tímum sagði mikið til um mannkosti hans."

Arne Slot tók við sem yfirþjálfari Liverpool sumarið 2024 eftir að Jürgen Klopp lét af störfum. Hann kom frá Feyenoord en þar hafði hann verið framkvæmdastjóri frá 2021. Arne gerði Feyenoord að meisturum í Hollandi 2023 og svo bikarmeisturum 2024. Hann hafði áður stýrt Cambuur, á leiktíðinni 2016/17, og svo AZ Alkmaar, 2019/20, í Hollandi.

Arne Slot gerði Liverpool að Englandsmeisturum á sínu fyrsta keppnistímabili. Liverpool vann deildina með glæsibrag og varð Englandsmeistari í 20. skipti í sögu félagsins. Liverpool komst líka í úrslit Deildarbikarins en tapaði 2:1 fyrir Newcastle United.

En þessi leiktíð var mikil þrautaganga. Allt sem gat farið úrskeiðis fór úrskeiðis. Liverpool endaði í fimmta sæti deildarinnar og tryggði sér þar með sæti í Meistaradeildinni á næsta keppnistímabili. Það kemur nú í hlut nýs manns að leiða Liverpool á þeirri leiktíð!
-
| Sf. Gutt
Í minningu -
| Sf. Gutt
Er Curtis Jones á förum? -
| Sf. Gutt
Hvað getur gerst? -
| Sf. Gutt
Nýir búningar kynntir! -
| Sf. Gutt
Aftur til fortíðar! -
| Sf. Gutt
Mohamed getur klárað keppnistímabilið! -
| Sf. Gutt
Reikna með að verða áfram hérna! -
| Sf. Gutt
Juventus vill fá Alisson! -
| Sf. Gutt
Hvað gerist eftir keppnistímabilið? -
| Sf. Gutt
Úr leik!

