Umsagnir
Stuðningsmenn Liverpool eru enn í sigurvímu eftir sigurinn í Evrópubikarnum. Það er því um að gera að halda áfram að fjalla um leikinn. Að sjálfsögðu voru matsmenn BBC í Miklagarði þegar Liverpool lék við AC Milan í úrslitaleiknum um Evrópubikarinn. Þrátt fyrir alla spennuna náði þeir að semja umsagnir um hetjur Liverpool. Umsagnirnar voru sem hér fer.
Jerzy Dudek. Var óöruggur á köflum en varð hetja kvöldsins með mikilvægum markvörslum. Meðal annars varði hann á undraverðan hátt frá Andriy Shevchenko á lokaandatökum leiksins. Hann varði svo tvær vítaspyrnur í vítaspyrnukeppninni. Einkunn: 9.
Steve Finnan. Bauð upp á nokkra ógn í sóknarleiknum en lenti oft í ógöngum. Hann varð að fara af leikvelli vegna meiðsla í hálfleik. Einkunn: 6.
Djimi Traore. Var úti á túni í fyrri hálfleik. Líktist meira hinum nýja Djimi Traore eftir hlé þegar hann bjargaði meira að segja einu sinni á síðustu stundu. Einkunn: 6.
Jamie Carragher. Var aldrei þessu vant fjarri sínu besta á meðan Milan hafði öll tök á leiknum. En hann yfirsteig krampa til að bjarga nokkrum sinnum á mikilvægum augnablikum. Einkunn: 7.
Sami Hyypia. Var á köflum í vandræðum með hraða þeirra Andrriy Shevchenko og Hernan Crespo. Sótti í sig veðrið eftir því sem leið á leikinn. Einkunn: 6.
Steven Gerrard. Var lítt áberandi í fyrri hálfleik en markið hans gaf liðinu von. Barðist eins og ljón í varnarhlutverki og dreif liðið sitt áfram. Einkunn: 8.
John-Arne Riise. Cafu hafði hann í vasanum í fyrri hálfleik. En þegar Brasilíumaðurinn þreyttist fór hann að leika betur. Einkunn: 6.
Xabi Alonso. Einn af þeim sem kom til sögunnar eftir leikhlé. Átti nokkrar góðar sendingar og hélt ró sinni til að jafna af punktinum. Einkunn: 7.
Luis Garcia. Misnotaði eina færi Liverpool í fyrri hálfleik og missti boltann of oft. Var hættulegri þegar þeim Rauðu fór að vegna betur. Einkunn: 6.
Harry Kewell. Öllum að óvörum fékk hann sæti í byrjunarliðinu en haltraði af leikvelli eftir 23 mínútur. Hluti stuðningsmannana baulaði á hann. Einkunn: 5.
Milan Baros. Varð að berjast einn við þá Stam og Nesta . Fékk fá tækifæri gegn þeim. Lék hugsanlega sinn síðasta leik fyrir félagið. Einkunn: 5.
Vladimir Smicer, skipti við Harry Kewell á 23. mínútu. Setti mark sitt á síðasta leik sinn þegar hann skoraði annað mark Liverpool. Markið var gríðarlega mikilvægt. Einkunn: 7.
Dietmar Hamann, skipti við Steve Finnan á 45. mínútu. Koma hans til leiks var lykilinn að hinni ótrúlegu endurkomu. Einkunn: 7.
Djibril Cisse, skipti við Milan Baros á 85. mínútu. Fékk tíma til að fullkomna hina ævintýralegu endurkomu sína eftir meiðsli. Var of æstur í að sýna hvað hann gæti. Var sjaldan líklegur til að skora sigurmarkið. Einkunn: 5.
Rafael Benitez. Allt byrjaði eins og verst gat orðið fyrir hann. En hálfleiksræðan og skiptingarnar veittu liðinu mikinn innblástur. Einkunn: 8.
Sem sagt. Jerzy Dudek var valinn besti maðurinn á vellinum. Neitar nokkur því áliti? Ég held varla.
-
| Grétar Magnússon
Origi leggur skóna á hilluna -
| Grétar Magnússon
Iraola tekur við stjórnartaumunum -
| Sf. Gutt
Liverpool Football Club á afmæli í dag! -
| Sf. Gutt
Munnlegt samkomulag frágengið! -
| Sf. Gutt
Af kvennaliðinu -
| Sf. Gutt
Ibrahima Konate heldur á braut! -
| Sf. Gutt
Andoni Iraola talinn líklegur arftaki Arne Slot! -
| Sf. Gutt
Arne Slot yfirgefur Liverpool! -
| Sf. Gutt
Í minningu -
| Sf. Gutt
Er Curtis Jones á förum?

