Ræðan hjá Rafa í hálfleik
Djimi Traore segir að leikmenn hafi verið ákaflega daprir og niðurlútir þegar þeir komu inn í búningsklefa í leikhléi í Istanbul, en Rafa Benítez hafi breytt því fljótt.
Djimi: "Þegar við komum inn í búningsklefann þá sögðum við bara að þetta væri búið, en framkvæmdastjórinn var með réttu orðin og fyllti okkur sjálfstrausti á ný.
Það fyrsta sem Rafa sagði okkur að gera var að hengja ekki haus. Allir þeir leikmenn sem ættu að hefja seinni hálfleikinn ættu að halda haus og það hátt. Við erum Liverpool, og þú ert að spila fyrir Liverpool. Ekki gleyma því. Þið þurfið að gera þetta fyrir stuðningsmennina. Þið verðið að gera þetta fyrir þá. Þú getur ekki kallað þið Liverpool leikmann ef þú hengir haus. Ef við sköpum okkur nokkur færi, þá eigum við alveg séns á að komast aftur inn í þetta. Ef þið trúið því að þið getið þetta, þá mun okkur takast það. Gefið sjálfum ykkur tækifæri á að verða hetjur.
Við breyttum um taktík í hálfleik og svo gaf mark Stevie okkur von og við héldum áfram í kjölfarið. Það var svo mikið um meiðsl hjá okkur í lok leiks og í framlengingunni. Við vorum vel undirbúnir og líkamlega klárir í leikinn, en spennan og andlegi þátturinn var bara svo rosalega erfiður. Þetta var orðin spurning um að biðja fyrir því að fá vítaspyrnukeppni og við reyndum bara að þrauka. Við sýndum hugrekki, ákveðni og þrjósku.
Við vorum sterkir andlega og þá kom að vítakeppninni sem er hálfgerð rúlletta. Við vorum ekki búnir að ákveða það fyrir leikinn hverjir myndu taka vítin, af því að við bjuggumst ekki við að fara í vítakeppni. Rafa spurði alla leikmennina hvort þeir vildu taka spyrnu, en ég þakkaði pent fyrir og sagði nei takk. En nú er þetta búið og ég vonast bara til að geta varið titilinn."
-
| Grétar Magnússon
Origi leggur skóna á hilluna -
| Grétar Magnússon
Iraola tekur við stjórnartaumunum -
| Sf. Gutt
Liverpool Football Club á afmæli í dag! -
| Sf. Gutt
Munnlegt samkomulag frágengið! -
| Sf. Gutt
Af kvennaliðinu -
| Sf. Gutt
Ibrahima Konate heldur á braut! -
| Sf. Gutt
Andoni Iraola talinn líklegur arftaki Arne Slot! -
| Sf. Gutt
Arne Slot yfirgefur Liverpool! -
| Sf. Gutt
Í minningu -
| Sf. Gutt
Er Curtis Jones á förum?

