Milljón manns á götum Liverpool!
Flugvélin sem flutti liðsmenn Liverpool og föruneyti lenti á John Lenneon flugvellinum um kaffileytið í gær. Þar tók borgarstjórinn í Liverpool á móti hinum sigursælu ferðalöngum. Sá ágæti maður mun reyndar styðja Everton! Eftir móttökuathöfn og stuttan fund með blaðamönnum hélt liðið í ökuferð um Liverpool. Þar var farið eftir fyrirfram ákveðinni leið. Meðal annars var farið framhjá Anfield Road. Við leikvanginn var liðunum fagnað gríðarlega vel og strætisvagnin nam staðar. Hvarvetna sem var farið var mannfjöldinn eins og ólgandi rauður hafsjór. Fánar, treflar og fatnaður. Allt var rautt yfir að líta.
Strætisvagnin endaði för sína í miðbænum og líklega náði ferðalagið hápunkti sínum fyrir framan St George´s Hall. Þá var tekið að bregða birtu en það kom ekki í veg fyrir að um 300.000 manns hafi verið þar. Sigurhátíðir Liverpool í gegnum tíðina hafa jafnan endað þarna. Í heild er talið að í kringum ein milljón manns hafi fagnað leikmönnum Liverpool á ferð liðsins um borgina. Segi og skrifa ein milljón!
Þrátt fyrir allan þennan gríðarlega mannfjölda fór allt sérlega vel fram að sögn lögreglu. En það var engu líkt að sjá mannhafið. Stemmningin var líka rafmögnum í borginni. Það skyldi því engan undra að leikmenn Liverpool og forráðamenn væru hrærðir þegar þeir tjáðu sig um móttökurnar sem þeir fengu í gær.
Dietmar Hamann: "Það var ótrúlegt um að lítast þegar við fórum um borgina eftir að við unnum Þrennuna árið 2001. En þetta slær það út. Maður sér hversu mikla þýðingu það hefur fyrir fólk að við skyldum vinna Evrópubikarinn. Að ná að koma til baka eftir að hafa verið 3:0 undir sýnir hversu frábær andlegur styrkur býr í liðinu. Við gerðum þetta fyrir stuðningsmennina. Betra gerist það ekki í lífi knattspyrnumanns."
Antonio Nunez: "Þetta er besta stund ferils míns hingað til. Ég spilaði í Madríd en ég hef aldrei séð annað eins. Stuðningsmennirnir eru svo háværir og þeir búa yfir svo miklum eldmóði fyrir hönd félagsins. Þetta er ótrúlegt."
Rafael Benítes: "Liverpool á bestu stuðningsmenn í heimi. Stuðmenn Valencia voru vanir að koma út á göturnar þegar við höfðum unnið titla. En það jafnaðist ekki á við þetta. Þetta er alveg einstakt fyrir mig í kvöld því konan mín og dæturnar eru með mér á strætisvagninum. Þetta er stórkostlegt, stórkostlegt kvöld og ég er svo stoltur."
Hér eru myndir sem voru teknar í gær. Þessar myndir eru teknar af þátttakendum í sigurhátíðinni en ekki fagljósmyndurum.
-
| Grétar Magnússon
Origi leggur skóna á hilluna -
| Grétar Magnússon
Iraola tekur við stjórnartaumunum -
| Sf. Gutt
Liverpool Football Club á afmæli í dag! -
| Sf. Gutt
Munnlegt samkomulag frágengið! -
| Sf. Gutt
Af kvennaliðinu -
| Sf. Gutt
Ibrahima Konate heldur á braut! -
| Sf. Gutt
Andoni Iraola talinn líklegur arftaki Arne Slot! -
| Sf. Gutt
Arne Slot yfirgefur Liverpool! -
| Sf. Gutt
Í minningu -
| Sf. Gutt
Er Curtis Jones á förum?

