| Sf. Gutt

Hendi Guðs!

Hendi Guðs hefur nokkrum sinnum verið sögð koma við sögu í knattspyrnusögunni. En var hún á ferðinni í Miklagarði þegar Jerzy Dudek varði í tvígang frá Andreiy Schevchenko í lok framlengingar?

Jerzy Dudek segist svo frá: "Bróðir minn hringdi í mig morguninn eftir leikinn og spurði mig hvort ég hefði séð leikinn aftur? Ég svaraði því neitandi. Hann sagði þá að ég yrði að sjá hann því markvarslan því frá Andreiy Schevchenko var gerð með hendi Guðs. Ég sagði honum að ég vissi ekki hvernig ég hefði farið að því að verja."

Andreiy Schevchenko skildi ekki hvernig Jerzy fór að því að verja: "Ég hitti boltann svo vel, í færinu undir lokin, að mér datt ekki í hug að nokkur maður myndi verja þetta. Ég trúi því ekki enn að boltinn skyldi ekki fara í markið. Ég er búinn að fara yfir þetta atvik aftur og aftur í huganum frá því þetta gerðist. Þetta var ótrúleg markvarsla. Vítaspyrnukeppni er grimmur leikur. Í svoleiðis keppni getur bara verið einn sigurvegari. Í þetta skiptið var komið að okkur að tapa."

Jerzy tekur aftur við: "Að koma til baka eftir að hafa verið 3:0 undir og vinna Evrópubikarinn er alveg stórkostlegt. Ef ég á að vera hreinskilinn þá vissi ég ekki að við værum búnir að vinna þegar ég varði frá Andriy Shevchenko. En svo sá ég alla strákana koma hlaupandi í áttina til mín. Það var frábær tilfinning. Í raun og veru er ekki hægt að lýsa tilfinningunni því hún var svo einstök. Við fögnuðum fram á nótt. Það var frábært. Við drukkum úr nokkrum glösum. Ja, eiginlega aðeins fleiri en nokkrum!

Svo var haldið heim til Liverpool: "Það er ekki hægt að lýsa því sem fyrir augu bar úr strætisvagninum. Þetta var alveg ótrúlegt. Það var svo margt fólk á götunum og þetta var frábært. Það var stórkostlegt að sjá fólkið svona hamingjusamt saman. Ég mun aldrei gleyma þessu. Þetta var besta stund ferils míns. Úrslitaleikurinn var einn magnaðasta stund sem við höfum allir upplifað. Það segir til um hversu mjög við nutum hans." 


 

TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan