Carra hrósar Jerzy Dudek
Jamie Carragher sparaði ekki hrósið í garð Jerzy Dudek eftir að hann varði stórkostlega frá Schevchenko í framlengingu þegar Liverpool tryggði sér sinn fimmta Evrópumeistaratitil í Istanbúl á miðvikudagskvöld.
Jamie Carragher sagði: "Þetta var einn af stórkostlegustu úrslitaleikjum allra tíma og markvarslan hjá Jerzy Dudek í uppbótartíma var ótrúleg. Ég trúi því ekki að við höfum unnið."
"Ég minntist á Bruce Grobbelaar við Jerzy. Þú ættir að gera það sama og hann gerði. Hann skildi örugglega ekki hvað ég var að tala um en hann sagðist hafa skilið það. Hann hélt því fram að hann hafi verið stuðningsmaður Liverpool þegar hann gekk til liðs við félagið. En það segja þeir allir!"
"Hann verður goðsögn núna. Ekki bara út af vítaspyrnunum heldur líka útaf markvörslunum frá Andriy Shevchenko í leiknum sjálfum. Þær voru ótrúlegar."
"Það var allur vindur úr okkur í hálfleik. Við vissum að við þyrftum að skora næsta mark, við vissum að við þyrftum að berjast. Þegar okkur tókst að skora virtist Milan bara hætta."
-
| Grétar Magnússon
Origi leggur skóna á hilluna -
| Grétar Magnússon
Iraola tekur við stjórnartaumunum -
| Sf. Gutt
Liverpool Football Club á afmæli í dag! -
| Sf. Gutt
Munnlegt samkomulag frágengið! -
| Sf. Gutt
Af kvennaliðinu -
| Sf. Gutt
Ibrahima Konate heldur á braut! -
| Sf. Gutt
Andoni Iraola talinn líklegur arftaki Arne Slot! -
| Sf. Gutt
Arne Slot yfirgefur Liverpool! -
| Sf. Gutt
Í minningu -
| Sf. Gutt
Er Curtis Jones á förum?

