| Sf. Gutt

Sofið hjá Evrópubikarnum

Það eru ekki margir sem hafa sofið með Evrópubikarinn í rúminu hjá sér. En það hefur Steven Gerrard gert. Steven sagði fyrir úrslitaleikinn í Miklagarði að hann ætlaði sér að koma með Evrópubikarinn heim aftur eftir tuttugu og eins árs fjarveru. Leiðtoginn stóð sannarlega við loforðið. Það þarf því ekki að undra neinn að Steven vildi hafa bikarinn nærri sér þar til komið væri heim til Liverpool. Steven tók því Evrópubikarinn með sér í rúmið þegar hann fór að sofa í fyrrinótt!

Steven og Rafael Benítes héldu á bikarnum þegar þeir gengu út úr flugvélinni á John Lennon flugvellinum í dag. Eftir blaðamannafund var svo haldið í ökuferð um borgina. Steven og félagar hans áttu varla orð til að lýsa móttökunum sem þeir fengu við heimkomuna.

"Þessir stuðningsmenn hafa veitt okkur innblástur. Þess vegna er það svo frábært að koma með bikarinn til baka fyrir þá. Þeir voru frábærir í Tyrklandi og hvöttu okkur til sigurs eftir að við vorum 3:0 undir í hálfleik. Ég sagði að við myndum koma með bikarinn heim fyrir stuðningsmennina og nú höfum við gert það.

Í gærkvöldi var besta stundin á ferli mínum. Ég bara get ekki lýst því hversu frábær tilfinning það var að koma höndum á Evrópubikarinn fyrir stuðningsmenn Liverpool. Það var einfaldlega besta tilfinning sem ég hef nokkurn tíma upplifað. Stuðningsmennirnir eru algerlega stórkostlegir. Hvernig þeir komu og studdu við bakið á okkur. Hávarðinn í þeim var alveg ótrúlegur."

 

TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan