| Sf. Gutt

Jerzy tileinkar Jóhannesi Páli heitnum sigurinn

Jerzy Dudek var hetja Liverpool í gærkvöldi. Líkt og félagar hans þá átti hann erfitt uppdráttar framan af leiknum. Það var vendipunktur í leiknum þegar hann varði aukaspyrnu frá Andriy Shevchenko í upphafi síðari hálfleiks. Stuttu síðar skoraði Steven Gerrard fyrsta mark Liverpool. En á lokamínútum framlengingarinnar bjargaði Jerzy ótrúlega frá Andriy. Hann varði þá tvívegis frá honum af stuttu færi. Viðbrögð Pólverjans voru ótrúleg og þetta andartak fer í annála Liverpool.

Jerzy var ekki enn búinn að segja sitt síðasta orð. Í vítaspyrnukeppninni varði hann tvær vítaspyrnur. Seinni spyrnan sem hann varði tryggði Liverpool endanlega sigur. Enn og aftur var það Andriy Shevchenko sem varð að lúta í lægra haldi fyrir Pólverjanum.

Eftir leikinn var Jerzy spurður um hvernig hann hefði farið að því að verja frá úkraínska snillingnum undir lok framlengingarinnar. "Ég veit ekki hvernig ég gerði það. Lánið var með mér. Þetta var frábært fyrir mig. Ég hafði beðið eftir þessari stundu. Ég átti erfiðar stundir í leiknum. En þetta er frábært.

Ég tileinka þetta minningu Jóhannesar Páls. Ég hitti hann í lífandi lífi og ég hef fundið fyrir innblæstri frá því hann lést. Ég get ekki skýrt það. Ég var sjúpt snortinn af honum á meðan hann lifði. Lát hans þýddi að þetta ár hefur verið mjög erfitt fyrir alla Pólverja. Hann hefur haft sterka nærveru í lífi allra Pólverja. Mér finnst það ótrúlegt að þetta allt hafi gerst árið sem að páfinn lést."

Jerzy Dudek var sannarlega hetja Liverpool í gærkvöldi. Hann hefur ekki alltaf átt upp á pallborðið hjá sparkspekingum og oft hefur hann mátt þola mikla gagnrýni. En í gærkvöldi fékk þessi hlédrægði Pólverji uppreisn æru. Það verður aldrei tekið af honum að hann tryggði Liverpool sigur með því að verja tvær vítaspyrnur í vítaspyrnukeppninni.

Kannski var Jóhannes Páll heitinn með landa sínum í markinu í gærkvöldi. Það þyrfti að minnsta kosti ekki að koma að óvart að hans heilagleiki hafi fylgst með Jerzy og Liverpool. Jóhannes Páll spilaði í marki á yngri árum og hafði mikið dálæti á Jerzy. Svo er talið að Jóhannes Páll hafi verið stuðingsmaður Liverpool. Það fylgdi blessun verkum Jerzy í gærkvöldi og hann tryggði Liverpool sigur. Þarf frekar vitnanna við?


TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan