Evrópumeistarar 2005!
Liverpool Football Club varð í gærkvöldi Evrópumeistari í knattspyrnu í fimmta sinn um leið vann liðið Evrópubikarinn til eignar.
Úrslitaleikurinn á Ataturk leikvanginum í Istanbúl er einn ótrúlegasti úrslitaleikur, á stórmóti, sem fram hefur farið í sögu knattspyrnunnar. Leiknum sjálfum lauk með jafntefli 3:3 eftir framlengingu. En Liverpool hafði betur 3:2 í vítaspyrnukeppni. Leikurinn fer í annála fyrst og síðast fyrir hinn ótrúlega viðsnúning sem varð í honum. Þegar flautað var til leikhlés virtust öll sund lokuð fyrir Liverpool. En annað kom kom á daginn. Rafael Benítes lagði á ráðin í hálfleiknum. Það ráðabrugg sneri leiknum Liverpool í hag.
Paolo Maldini kom ítalska liðinu yfir með marki eftir aðeins 53. sekúndur. Þetta mark sló leikmenn Liverpool alveg út af laginu og AC Milan var miklu sterkari aðilinn í fyrri hálfleik. Vörn Liverpool slapp oft með skrekkinn þegar hver sókn AC Milan á fætur annarri skall á henni. Mikið óöryggi var í leik Liverpool og Dietmar Hamann var sárt saknað af miðjunni. Mörgum fannst að hann hefði átt að koma inn á þegar Harry Kewell varð að fara af leikvelli vegna meiðsla. En það var Vladimir Smicer sem kom inn á. Leikur Liverpool lagaðist ekkert við það og það kom ekki á óvart þegar Hernan Crespo skoraði eftir vel útfærða sókn á 39. mínútu. Argentínumaðurinn var aftur á ferðinni á 44. mínútu þegar hann komst einn í gegnum vörn Liverpool og lyfti boltanum yfir Jerzy Dudek. Leikmenn Liverpool voru í mestu vandræðum og þegar dómarinn flautaði til leikhlés virtist leikurinn tapaður.
En það voru gjörbreyttir leikmenn Liverpool sem komu til leiks eftir hlé. Dietmar Hamann kom til leiks. Steve Finnan fór af leikvelli og það fækkað var í vörninni. Þjóðverjinn tók til óspilltra málanna á miðjunni og leikur Liverpool umturnaðist á svipstundu. Vendipunktur leiksins kom þegar Jerzy Dudek varði frábærlega aukaspyrnu frá Andreiy Shevchenko. Nú fóru í hönd ótrúlegustu sex mínútur í sögu Liverpool. Á 54. mínútu skoraði Steven Gerrard með glæsilegum skalla eftir fyrirgjöf John Arne Riise. Markið gaf lítilsháttar von. Tvær mínútur liðu og varamaðurinn Vladimir Smicer skoraði með þrumuskoti utan vítateigs. Allt í einu var það ítalska liðið sem vissi ekki hvaðan á það stóð veðrið. Enn liðu þrjár mínútur. Steven Gerrard braust inn í vítateiginn þar sem brotið var á honum. Xabi Alonso tók vítaspyrnuna. Dida varði frábærlega. En Brasilíumanninum tókst ekki að halda boltanum. Xabi var fyrstur að átta sig og hamraði boltann upp í þaknetið. Staðan var orðinn 3:3. Þvílíkur viðsnúningur! Stuðningsmenn Liverpool trúðu vart sínum eigin augum! Reyndar gerðu stuðningsmenn AC Milan það ekki heldur! Liverpool hafði nú öll völd á vellinum og liðið var nær sigri til leiksloka. Djibril Cisse kom inn á fyrir Milan Baros undir lokin. Meira var ekki skorað í venjulegum leiktíma.
Ítalska liðið sótti meira í framlengingunni. Nokkrir leikmanna Liverpool voru orðir örþreyttir en þeir gáfu ekki þumlung eftir. Jamie Carragher var orðinn hálfganglaus á lokamínútunum eftir að hann tognaði illa. Rétt undir lok framlengingarinnar fékk Andreiy Shevchenko dauðafæri. Boltinn barst til hans á markteig. Hann skaut að marki en á ótrúlegan hátt náði Jerzy að verja. Boltinn fór aftur til Úkraínumannsins en Pólverjinn sá við honum í annan gang með frábærum viðbrögðum. Ótrúlegar markvörslur. Litlu síðar var flautað til loka framlengingarinnar.
Vítaspyrnukeppnin varð svo eign Jerzy Dudek. Á árinu sem páfi lést var engu líkara en landi hans nyti blessunnar hans í markinu. Fyrsta spyrna ítalska liðsins fór yfir. Dietmar Hamann svaraði með marki. Jerzy varði næstu spyrnu. Djibril Cisse bætti við forystu Liverpool. Loks náði AC Milan að nýta spyrnu og liðið átti von þegar Dida varði frá John Arne Riise. Næsta spyrna ítalska liðsins hafnaði í markinu. En Vladimir Smicer kom Liverpool í 3:2. Jerzy Dudek fullkomnaði svo fullkomna kvöldstund þegar hann varði næstu spyrnu AC Milan frá Knattspyrnumanni Evrópu Andreiy Shevchenko! Stuðningsmenn Liverpool gengu af göflunum hvar svo í veröldinni sem þá var að finna. Evrópubikarinn var kominn í hendur Liverpool Football Club í fimmta sinn!!!!!
Fögnuður stuðningsmanna Liverpool var taumlaus á Ataturk leikvanginum. Hápunkti náði hann þegar Steven Gerrard tók við Evrópubikarnum. Þá fyrst gátu stuðningsmenn Liverpool endanlega treyst því að leikurinn hefði í raun endað með sigri liðsins þeirra!
Evrópuvegferð Liverpool lá frá Austurríki til Istanbúl á þessari leiktíð. Það var farið um langan veg. Líklega áttu ekki margir sparkspekingar von á því að ferðalok yrðu eins og raun var á í gærkvöldi. En vegferðin var ævintýri og það ævintýri endaði eins vel og hugsast gat!
Liðsskipan og markaskorar:
AC Milan: Dida, Cafu, Maldini, Stam, Nesta, Gattuso (Rui Costa 112. mín.), Seedorf (Serginho 86. mín.), Pirlo, Kaka, Shevchenko og Crespo (Tomasson 85. mín.). Ónotaðir varamenn: Abbiati, Kaladze, Costacurta og Dhorasoo.
Mörk AC Milan: Paolo Maldini 1 (mín.) og Hernan Crespo (39. og 44. mín.).
Liverpool: Dudek, Finnan (Hamann 46. mín.), Traore, Hyypia, Carragher, Riise, Gerrard, Luis Garcia, Alonso, Kewell (Smicer 23. mín.) og Baros (Cisse 85. mín.). Ónotaðir varamenn: Carson, Josemi, Nunez, Biscan.
Gul spjöld: Carragher og Baros.
Mörk Liverpool: Steven Gerrard (54. mín.), Vladimir Smicer (56. mín) og Xabi Alonso (59. mín).
Vítaspyrnukeppnin:
0:0. Serginho skýtur yfir.
0:1. Dietmar Hamann skorar með öruggu skoti út við stöng.
0:1. Jerzy Dudek skutlar sér til hægri og ver frá Pirlo.
0:2. Djibril Cisse skorar með öruggu innanfótarskoti og sendir markvörðinn í öfugt horn.
1:2. Jon Dahl Tomasson skorar með föstu skoti neðst í hornið.
1:2. Dida hendir sér til hægri og ver út við stöng frá John Arne Riise.
2:2. Kaká sendir Jerzy Dudek í öfugt horn.
2:3. Vladimir Smicer sendir Dida í öfugt horn með öruggri spyrnu sem fer vinstra megin við markvörðinn.
2:3. Andriy Shevchenko tekur næstu spyrnu svo til á mitt markið. Jerzy Dudek hendir sér til hægri en nær að teygja sig í boltann og verja. Pólverjinn tryggði þar með Liverpool sigur!
Áhorfendur á Ataturk leikvanginum: 65.000.

-
| Grétar Magnússon
Origi leggur skóna á hilluna -
| Grétar Magnússon
Iraola tekur við stjórnartaumunum -
| Sf. Gutt
Liverpool Football Club á afmæli í dag! -
| Sf. Gutt
Munnlegt samkomulag frágengið! -
| Sf. Gutt
Af kvennaliðinu -
| Sf. Gutt
Ibrahima Konate heldur á braut! -
| Sf. Gutt
Andoni Iraola talinn líklegur arftaki Arne Slot! -
| Sf. Gutt
Arne Slot yfirgefur Liverpool! -
| Sf. Gutt
Í minningu -
| Sf. Gutt
Er Curtis Jones á förum?

