Dregið í Meistaradeild
Fyrr í dag var dregið í Meistaradeildinni og því ljóst hverjir verða mótherjar okkar manna í deildarkeppninni í vetur.
Liðin sem Liverpool leikur við eru Atletico Madrid, FC Porto, Villarreal, RC Lens á Anfield og útileikir verða spilaðir við Internazionale, Club Brugge, Fenerbahce og LASK.
Nánari leikjadagskrá verður gefin út í síðasta lagi á sunnudag skv. fréttatilkynningu frá evrópska knattspyrnusambandinu, UEFA. Fyrirkomulag deildarinnar ætti að vera orðið vel kunnugt en sem fyrr fara efstu 8 liðin beint í 16-liða úrslitin og liðin sem enda í 9. til 24. sæti fara í umspil til að komast þangað.
Nú getum við farið að láta okkur hlakka til Evrópukvölda á Anfield á ný!

-
| Sf. Gutt
Allt hefur gerst rosalega hratt! -
| Sf. Gutt
Bandaríkjamarkaður er mjög mikilvægur! -
| Sf. Gutt
Af leikmannamálum -
| Sf. Gutt
Ætlum að vera tilbúnir í fyrsta leik! -
| Sf. Gutt
Leikjatilfærslur -
| Sf. Gutt
Mikið verk fyrir höndum! -
| Sf. Gutt
Drjúg leið að landi! -
| Sf. Gutt
Ronald Araujo fenginn að láni! -
| Sf. Gutt
Ég reyni að gera mitt besta! -
| Sf. Gutt
Þurfum að bæta margt!

