Mohamed Salah gengur til liðs við Trabzonspor!

Egypski kóngurinn Mohamed Salah er búinn að ákveða sig með næsta skref á ferli sínum. Hann flytur nú með fjölskyldu sína til Tyrklands. Mohamed er búinn að gera samning við tyrkneska liðið Trabzonspor. Samningurinn er til tveggja ára. Um tíma leit út fyrir að hann færi til Besiktas en samningar náðust ekki milli hans og félagsins.
Mohamed Salah ákvað í vetur að yfirgefa Liverpool þó hann ætti eitt ár eftir af samningi sínum við félagið. Samkomulag náðist milli hans og forráðamnna Liverpool um að hann fengi frjálsa sölu. Hann var því laus allra mála hjá Liverpool í lok nýliðinnar leiktíðar.

Mohamed kom til Liverpool sumarið 2017 og var því í herbúðum Rauða hersins í níu leiktíðir. Hann yfirgefur Rauða herinn sem goðsögn og einn allra besti leikmaður í sögu félagsins! Hann lék 442 leiki með Liverpool og skoraði 257 mörk. Að auki lagði hann upp 120 mörk. Hann er þriðji markahæsti leikmaður í sögu Liverpool á eftir þeim Ian Rush og Roger Hunt!

Hann vann níu titla hjá Liverpool. Þrívegis var hann kjörinn Knattspyrnumaður ársins af blaðamönnum og tvisvar af leikmönnum. Stórkostlegur árangur!

Liverpool klúbburinn á Íslandi þakkar Mohamed Salah framlag sitt til Liverpool og óskar honum góðs gengis á nýjum slóðum!
YNWA!
-
| Sf. Gutt
Draumar geta orðið að veruleika! -
| Sf. Gutt
Þrír lykilmenn fjarri góðu gamni! -
| Sf. Gutt
Af kvennaliðinu -
| Sf. Gutt
Hann kenndi mér mjög margt! -
| Sf. Gutt
Virgil van Dijk með 100 landsleiki! -
| Sf. Gutt
Andrew Robertson með 100 landsleiki! -
| Sf. Gutt
Tveir komnir fyrr heim! -
| Sf. Gutt
Í minningu Bill Shankly -
| Sf. Gutt
George Gillett látinn -
| Sf. Gutt
Fyrir og eftir!

