Rétt skef!

Victor Munoz er mættur til Liverpool borgar. Spánverjinn segist handviss um að hann hafi tekið rétt skref á ferli sínum með því að ganga til liðs við Liverpool. Andoni Iraola, landi hans, er sammála honum.
,,Ég er handviss um að þetta er rétt skref sem ég hef nú tekið. Andoni er sama sinnis og hann hefur mikla trú á mér. Hann segir réttilega að ég sé enn frekar ungur að árum. Ég ætla að sinna öllu hérna eins og sannur atvinnumaður og hann á eftir að hjálpa mér. Hann á eftir að hjálpa mér að þróast og taka framförum hjá þessu mikla félagi og á Anfield þessum goðsagnakennda leikvangi."

Victor gekk til liðs við Liverpool fyrir Heimsmeistarakeppnina í sumar. Svo fór að Spánverjar urðu heimsmeistarar. Victor var í liðshópi Spánar en spilaði ekkert. Hann telst þó heimsmeistari.
Það verður áhugavert að sjá hvernig Victor Munoz gengur hjá Liverpool. Hann er 23. ára en er enn frekar óreyndur. Í raun hefur hann bara spilað eina leiktíð í aðalliði og það var sú sem lauk í vor. Honum gekk mjög vel hjá Osasuna en það á eftir að reyna á hann í ensku knattspyrnunni.
-
| Sf. Gutt
Mohamed Salah gengur til liðs við Trabzonspor! -
| Sf. Gutt
Vill láta meira til sín taka! -
| Sf. Gutt
Nýr varabúningur vígður! -
| Sf. Gutt
Fleiri æfingaleikir -
| Sf. Gutt
Jeremy ekki enn búinn að ná sér! -
| Sf. Gutt
Joe Gomez úr leik! -
| Sf. Gutt
Freddie Woodman fær nýjan samning! -
| Sf. Gutt
Peningar í kassann! -
| Sf. Gutt
Kostas kominn heim! -
| Sf. Gutt
Liðshópur Liverpool sem fór til Bandaríkjanna!

