Nýr varabúningur vígður!

Liverpool vígði varabúning sinn þegar liðið mætti Wrexham í Bandaríkjunum. Búningurinn á rætur að rekja til varabúnings sem Liverpool lék í af og til á seinni hluta síðustu aldar.

Treyjunar eru hvítar sem er löng hefð fyrir í varabúningum Liverpool. Adidas rendurnar framan á ermum og öxlum eru rauðar, hvítar og gráar. Buxurnar eru rauðar með hvítum adidas röndum líkt og buxur aðalbúningsins. Sokkarnir eru hvítir. Liverpool spilaði af og til í áþekkum varabúningi á níunda áratug 20. aldarinnar. Sá búningur var í raun þriðji búningur á móti gráum varabúningi.

Félagsmerkið er sama útfærsla og liðið notaði á níunda og tíunda áratug síðustu aldar. Merkið er í rauðum lit á hvítum grunni treyjunnar. Hér að ofan sést merkið í þremur útfærslum frá því í þá daga. Í tveimur aðalbúningum og einum varabúningi.
Efst sést Harvey Elliott í nýja varabúningum í æfingaleiknum við Wrexham. Liverpool vann fyrsta leikinn í þessum búningi 1:0. Góð byrjun!
-
| Sf. Gutt
Leikjatilfærslur -
| Sf. Gutt
Nýr varafyrirliði -
| Grétar Magnússon
Gluggadagur - hvað er títt? -
| Grétar Magnússon
Stefan Bajcetic seldur til Celta Vigo -
| Grétar Magnússon
Barcola staðfestur -
| Grétar Magnússon
Leikdagar í Meistaradeild -
| Grétar Magnússon
Þriðja treyjan kynnt til leiks -
| Grétar Magnússon
Stórleikur í Deildarbikar -
| Grétar Magnússon
Dregið í Meistaradeild -
| Sf. Gutt
Allt hefur gerst rosalega hratt!

