Fleiri æfingaleikir

Þegar Liverpool kemur heim frá Ameríku bíða þrír æfingaleikir heima á Anfield Road. Fyrst verður leikið við franska liðið Monaco og svo kemur Como 1907 frá Ítalíu í heimsókn.
Leikur Liverpool og Monaco verður sunnudaginn 9. ágúst og hefst klukkan hálf tvö eftir hádegi. Opið verður fyrir áhorfendur á leikinn.
Como kemur í heimsókn sunnudaginn 16. ágúst. Liverpool og Como leika tvívegis þennan dag. Fyrst án áhorfenda klukkan 11 um morguninn og svo aftur fyrir framan áhorfendur seinni partinn klukkan fimm. Fyrri leikurinn verður á AXA æfingasvæðinu en sá seinni á Anfield.
Að spila tvisvar samdægurs gegn sama liðinu hefur áður verið gert á undirbúningstímabilum Liverpool síðustu árin. Fyrir síðasta keppnistímabil spilaði Liverpool til dæmis tvisvar við Athletic Bilbao á sama degi. Báðir þeir leikir voru á Anfield.
-
| Sf. Gutt
Leikjatilfærslur -
| Sf. Gutt
Nýr varafyrirliði -
| Grétar Magnússon
Gluggadagur - hvað er títt? -
| Grétar Magnússon
Stefan Bajcetic seldur til Celta Vigo -
| Grétar Magnússon
Barcola staðfestur -
| Grétar Magnússon
Leikdagar í Meistaradeild -
| Grétar Magnússon
Þriðja treyjan kynnt til leiks -
| Grétar Magnússon
Stórleikur í Deildarbikar -
| Grétar Magnússon
Dregið í Meistaradeild -
| Sf. Gutt
Allt hefur gerst rosalega hratt!

