Harvey Elliott æfir af kappi!

Harvey Elliott er búinn að æfa af kappi í allt sumar. Hann er kominn aftur til Liverpool eftir að forráðamenn Aston Villa ákváðu að hætta við að fjárfesta í honum.

Ákveðið var að leikjafjöldinn sem Harvey þurfti að ná til að af kaupunum yrði væri tíu leikir. Fyrir algjöra tilviljun lék Harvey níu leiki fyrir Aston Villa. Hann skoraði einu sinni. För hans til Birmingham varð þó ekki alveg erindisleysa því hann kom til baka með verðlaunapening fyrir sigur Aston Villa í Evrópudeildinni. Hann lék einn leik og skoraði eina mark sitt fyrir félagið á leiðinni að sigri í keppninni. Harvey var varamaður í úrslitaleiknum þegar Villa vann Freiburg 3:0. Harvey bætti þar með í verðlaunasafn sitt en hann hefur unnið sjö titla á ferli sínum með Liverpool.
Núna í sumar hefur Harvey Elliott æft af kappi. Hann er búinn að einsetja sér að vera í eins góðu standi og mögulegt er þegar undirbúiningstímabil Liverpool hefst í næsta mánuði. Hann nær vonandi að sýna hvað í honum býr á komandi leiktíð. Síðasta fór auðvitað í vaskinn sem var hið versta mál fyrir hann.

Harvey, sem er 23. ára, kom til Liverpool frá Fulham sumarið 2019. Hann hefur leikið 149 leiki með Liverpool, skorað 15 mörk og lagt upp 17.
-
| Sf. Gutt
Draumar geta orðið að veruleika! -
| Sf. Gutt
Þrír lykilmenn fjarri góðu gamni! -
| Sf. Gutt
Af kvennaliðinu -
| Sf. Gutt
Hann kenndi mér mjög margt! -
| Sf. Gutt
Virgil van Dijk með 100 landsleiki! -
| Sf. Gutt
Andrew Robertson með 100 landsleiki! -
| Sf. Gutt
Tveir komnir fyrr heim! -
| Sf. Gutt
Í minningu Bill Shankly -
| Sf. Gutt
George Gillett látinn -
| Sf. Gutt
Fyrir og eftir!

