Dominik Szoboszlai verður um kyrrt!

Dominik Szoboszlai, fyrirliði ungverska landsliðsins, verður áfram hjá Liverpool. Hann er búinn að framlengja samning sinn hjá félaginu. Samningurinn er til næstu fimm ára.

Hann gekk í raðir Liverpool frá Red Bull Leipzig fyrir um 60 milljónir punda sumarið 2023. Það tók hann tíma að fóta sig en eftir að hann náði áttum á Englandi hefur hann verið lykilmaður hjá Liverpool.
Síðustu mánuði hefur verið óvissa um hvort Dominik myndi vilja vera áfram hjá Liverpool en nú þarf ekki að velta því meira fyrir sér. „Þegar ég skrifaði fyrst undir sagði ég að ég vildi vinna alla titla sem eru í boði hér á landi. Það hefur ekkert breyst. Ég vil vinna allt sem hægt er að vinna hér og líka Meistaradeildina. Ég er tilbúinn í slaginn!"

Dominik er búinn að spila 147 leiki með Liverpool, skora 28 mörk og leggja upp 24. Hann var besti leikmaður Liverpool á síðasta keppnistímabili. Þá skoraði hann 13 mörk í öllum keppnum og átti 12 stoðsendingar. Mikilvægi hans er augljóst.
Frábærar fréttir! Reyndar með allra bestu fréttum sumarsins sem tengjast Liverpool.
-
| Sf. Gutt
Ég reyni að gera mitt besta! -
| Sf. Gutt
Þurfum að bæta margt! -
| Sf. Gutt
Mohamed Salah gengur til liðs við Trabzonspor! -
| Sf. Gutt
Rétt skef! -
| Sf. Gutt
Vill láta meira til sín taka! -
| Sf. Gutt
Nýr varabúningur vígður! -
| Sf. Gutt
Fleiri æfingaleikir -
| Sf. Gutt
Jeremy ekki enn búinn að ná sér! -
| Sf. Gutt
Joe Gomez úr leik! -
| Sf. Gutt
Freddie Woodman fær nýjan samning!

