Spánverjar heimsmeistarar!

Spánverjar urðu heimsmeistarar í knattspyrnu fyrir viku með því að leggja Argentínumenn að velli 1:0 að velli á New York New Jersey leikvanginum. Þetta er annar heimsmeistaratitill Spánverja.
Skiljanlega var mikil eftirvænting í loftinu fyrir leikinn. Það kom ekki endilega á óvart að þessi lið skyldu komast í úrslit. Argentínumenn heimsmeistarar frá því í Katar og Spánverjar ríkjandi Evrópumeistarar.
Spánverjar náðu strax yfirhöndinni og það varð strax ljóst að Argentínumenn ætluðu að reyna að verjast sem lengst án þess að fá á sig mark. Emiliano Martínez var hreint út sagt frábær í marki Argentínu og varði það sem á markið kom. Reyndar kom varla opið færi í fyrri hálfleik.
Sigur Spánar var sanngjarn í þessum leik og eins þegar á heildina er litið. Sem dæmi má nefna að liðið fékk bara eitt mark á sig á öllu mótinu. Það segir sína sögu um styrk Spánverja að Argentínumenn náðu ekki einu markskoti í venjuegum leiktíma.
Liverpool fékk heimsmeistara! Victor Munoz var í liðshópi Spánverja á mótinu. Hann kom ekki í sögu í neinum leik. Hann var reyndar meiddur hluta af keppninni. Victor gekk til liðs við Liverpool fyrir HM en hefur auðvitað ekki ennþá spilað fyrir h0nd félagsins.
Alexis Mac Allister hlaut silfur. Hann stóð fyrir sínu í úrslitaleiknum og var með betri leikmönnum sinnar þjóðar á mótinu.
Mark Spánverja: Ferran Torres (106. mín.)
Áhorfendur á New York New Jersey leikvanginum: 80.663.
Fróðleikur
- Spánn varð heimsmeistari í annað sinn.
- Áður vann Spánn Heimsmeistarakeppnina 2010 í Suður Afríku.
- Spánverjinn Rodri var kjörinn Besti leikmaður mótsins.
- Frakkinn Kylian Mbappé varð markakóngur með tíu mörk.
- Unai Simón, markmaður Spánar, fékk Gullhanskann. Hann fékk aðeins eitt mark á sig!
- Liverpool átti átta leikmenn á HM.
- Alexis Mac Allister varð sjöundi leikmaður Liverpool til að spila í úrslitaleik HM. Hann varð heimsmeistari fyrir fjórum árum þegar hann var í herbúðum Brighton.
-
| Sf. Gutt
Dominik Szoboszlai verður um kyrrt! -
| Sf. Gutt
Æfingaleikir sumarsins -
| Sf. Gutt
Af HM -
| Sf. Gutt
Aftur til æfinga -
| Sf. Gutt
Af HM -
| Sf. Gutt
Jérémy Jacquet orðinn leikmaður Liverpool! -
| Sf. Gutt
Harvey Elliott æfir af kappi! -
| Sf. Gutt
Kemur Jarrell aftur heim? -
| Sf. Gutt
Óvissa með Curtis Jones! -
| Sf. Gutt
Armin Pecsi kominn með landsleik

