Jérémy Jacquet orðinn leikmaður Liverpool!

Franski miðvörðurinn Jérémy Jacquet er formlega orðinn leikmaður Liverpool. Greint var frá því 2. febrúar að hann myndi ganga til liðs við Liverpool í sumar og nú 1. júlí er hann orðinn leikmaður Liverpool.
Samkvæmt fréttum borgaði Liverpool 55 milljónir sterlingspunda fyrir Jérémy. Að uppfylltum skilgreindum ákvæðum á kaupverðið að hækka upp í 60 milljónir.
Jeremy er fæddur 13. júlí 2005. Hann er uppalinn hjá franska liðinu Rennes og lék sinn fyrsta leik með aðalliðinu í janúar fyrir tveimur árum. Jeremy var um tíma í láni hjá Clermont Foot.
Jeremy þykir með allra efnilegustu miðvörðum Frakklands. Hann hefur leikið með yngri landsliðum Frakka og nú síðast með undir 21. árs liðinu. Hann er búinn að spila fimm landsleiki með þeim aldursflokki. Árið 2024 var hann valinn í úrvalslið Evrópumóts landsliða undir 19 ára.
-
| Sf. Gutt
Harvey Elliott æfir af kappi! -
| Sf. Gutt
Kemur Jarrell aftur heim? -
| Sf. Gutt
Óvissa með Curtis Jones! -
| Sf. Gutt
Armin Pecsi kominn með landsleik -
| Sf. Gutt
Ibrahima Konaté fer til Real Madrid! -
| Sf. Gutt
Af leikmannamálum -
| Sf. Gutt
Nýi maðurinn strax meiddur! -
| Sf. Gutt
Leikjadagskráin birt -
| Sf. Gutt
Victor Munoz keyptur! -
| Sf. Gutt
Þrír þjálfarar fara!

