Kemur Jarrell aftur heim?

Kemur Jarrell Quansah aftur heim? Hann var seldur til Bayer Leverkusen í fyrrasumar. Bayer borgaði 30 milljónir sterlingspunda. Kaupverðið gat svo hækkað samkvæmt ákvæðum í samningnum um fimm milljónir. Honum gekk mjög vel hjá Bayer á nýliðinni leiktíð, spilaði 43 leiki og skoraði fjórum sinnum.
En Liverpool á endurkauprétt á Jarrell sem hægt er að virkja. Ef Liverpool ákveður að virkja kaupréttinn á þessu ári þarf að borga 69 milljónir punda. En á næsta ári fellur endurkaupverð niður í 52 milljónir eftir því sem hermt er. Sé þetta rétt er talið líklegra að Liverpool kaupi hann frekar til baka á næsta ári.
Jarrell spilaði sinn fyrsta landsleik í nóvember í fyrra. Hann gat valið um að spila með Englandi, Skotlandi, Gana og Barbados. Hann var valinn í HM landsliðshóp Englands.
-
| Mummi
Miðasala á Liverpool leik -
| Sf. Gutt
Vinir og keppinautar! -
| Sf. Gutt
Þurfum bara að mata hann! -
| Sf. Gutt
Allt samkvæmt áætlun! -
| Sf. Gutt
Þrír lykilmenn fjarri góðu gamni! -
| Sf. Gutt
Verður leiknum frestað? -
| Sf. Gutt
Til hamingju! -
| Sf. Gutt
Giovanni Leoni á enn eitthvað í land -
| Sf. Gutt
Merkur áfangi hjá fyrirliðanum! -
| Sf. Gutt
Draumar geta orðið að veruleika!

