Af HM

Nú liggur fyrir hvaða þjóðir leika til úrslita um heimsmeistaratitilinn á sunnudaginn. Argentína og Spánn leiða saman hesta sína í úrslitaleiknum. Liverpool á tvo fulltrúa í New York á sunnudaginn.

Í fyrrakvöld mættust Frakkland og Spánn í Arlington. Evrópumeistarameistarnir voru lengst af með yfirhöndina. Þeir komust yfir á 22. mínútu úr vítaspyrnu sem Mikel Oyarzabal skilaði í markið. Sigurinn var svo tryggður á 58. mínútu þegar Pedro Porro skoraði. Spánverjar voru mjög sannfærandi í leiknum. Victor Munoz var meðal varamanna Spánverja.

Í kvöld unnu Argentínumenn 2:1 sigur á Englendingum í mikilli rimmu í Atalanta. Anthony Gordon kom enskum yfir á 55. mínútu. Eftir þetta tóku heimsmeistararnir öll völd á vellinum og herjuðu linnulaust á enska markið. Alexis Mac Allister var stórgóður og var óheppinn að skora ekki þegar hann átti skalla í innanverða stöngina. Þar kom að vörn Englands brast og Enzo Fernández jafnaði á 85. mínútu. Það var svo Lautaro Martínez sem tryggði Argentínumönnum sigur sjö mínútum seinna. Markið kom í sókn sem Alexis átti skot í stöng. Lionel Messi lagði upp bæði mörkin.
Argentínumenn og Spánverjar leika því til úrslita á sunnudaginn. Leikurinn fer fram í New York. Alexis verður fulltrúi Liverpool í landsliði Argentína. Í liði Spánar verður Victor fulltrúi Liverpool.
-
| Sf. Gutt
Ég reyni að gera mitt besta! -
| Sf. Gutt
Þurfum að bæta margt! -
| Sf. Gutt
Mohamed Salah gengur til liðs við Trabzonspor! -
| Sf. Gutt
Rétt skef! -
| Sf. Gutt
Vill láta meira til sín taka! -
| Sf. Gutt
Nýr varabúningur vígður! -
| Sf. Gutt
Fleiri æfingaleikir -
| Sf. Gutt
Jeremy ekki enn búinn að ná sér! -
| Sf. Gutt
Joe Gomez úr leik! -
| Sf. Gutt
Freddie Woodman fær nýjan samning!

