Af HM

Átta liða úrslitum Heimsmeistarakeppninnar í Ameríku er lokið. Viðureignirnar voru spennandi en allar fóru, þegar upp var staðið eftir bókinni.
Í fyrsta leik vann Frakkland nokkuð öruggan sigur á Marokkó. Frakkar unnu með tveimur mörkum í síðari hálfleik. Ibrahima Konaté var á bekknum.
Í leik tvö mættust Spánn og Belgía. Spánverjar komust yfir en Belgar jöfnuðu fyrir leikhlé. Spánverjar herjuðu fram sigur með marki tveimur mínútum fyrir leikslok. Victor Munoz, nýi leikmaður Liverpool, var búinn að ná sér af meiðslum og var til taks en kom ekki inn á.
Í leik þrjú leiddu England og Noregur saman hesta sína. Noregur komst yfir en England náði að jafna í viðbótartíma fyrri hálfleiks. England skoraði úrslitamarkið snemma í framlengingu. Jarell Quansah var í leikbanni og Jordan Henderson gat ekki tekið þátt vegna meiðsla.

Í leik fjögur mættu heimsmeistarar Argentínu Sviss. Alexis Mac Allister kom Argentínumönnum með góðum skalla snemma í leiknum. Dan Ndoye jafnaði í síðari hálfleik. Jafnt var eftir venjulegan leiktíma. Julián Álvarez og Lautaro Martínez tryggðu Argentínumönnum sigur í framlenginunni. Alexis þótti spila mjög vel.
Í undanúrslitum mætast annars vegar Frakkland og Spánn og hins vegar Argentína og England. Fyrri leikurinn verður á þriðjudagskvöldið og sá seinni kvöldið eftir.
-
| Sf. Gutt
Ég reyni að gera mitt besta! -
| Sf. Gutt
Þurfum að bæta margt! -
| Sf. Gutt
Mohamed Salah gengur til liðs við Trabzonspor! -
| Sf. Gutt
Rétt skef! -
| Sf. Gutt
Vill láta meira til sín taka! -
| Sf. Gutt
Nýr varabúningur vígður! -
| Sf. Gutt
Fleiri æfingaleikir -
| Sf. Gutt
Jeremy ekki enn búinn að ná sér! -
| Sf. Gutt
Joe Gomez úr leik! -
| Sf. Gutt
Freddie Woodman fær nýjan samning!

