Reikna með að verða áfram hérna!

Arne Slot segir að hann reikni með að verða áfram framkvæmdastjóri Liverpool á næsta keppnistímabili. Hann segist alltaf hafa viljað halda áfram starfi sínu þó svo að blásið hafi hressilega á móti á keppnistímabilinu sem senn rennur sitt skeið.
,,Ég hef alltaf viljað halda áfram. Ég hef ítrekað sagt að liðið verði mun betur statt á næstu leiktíð en á þessari. Ég er hundrað og fimmtíu sinnum búinn að útskýra ástæður fyrir þeirri skoðun minni. Á þessu keppnistímabili höfðum við lengst af að einhverju að keppa. Við töpuðum fyrir Paris Saint Germain og City fyrir tveimur mánuðum. Þá fyrst gátum við ekki unnið neitt. En segja má að við getum ennþá unnið okkur inn sæti í Meistaradeildinni."

Það er komin gríðarlega mikil pressa á Arne Slot. Flest sem hefur getað farið úrskeiðis hefur gert það. Nú er að sjá hvort eigendur Liverpool skipta um skoðun þegar keppnistímabilinu lýkur. Það er að þeir ákveði að nýjan mann þurfi í sæti framkvæmdastjóra Liverpool.
-
| Grétar Magnússon
Origi leggur skóna á hilluna -
| Grétar Magnússon
Iraola tekur við stjórnartaumunum -
| Sf. Gutt
Liverpool Football Club á afmæli í dag! -
| Sf. Gutt
Munnlegt samkomulag frágengið! -
| Sf. Gutt
Af kvennaliðinu -
| Sf. Gutt
Ibrahima Konate heldur á braut! -
| Sf. Gutt
Andoni Iraola talinn líklegur arftaki Arne Slot! -
| Sf. Gutt
Arne Slot yfirgefur Liverpool! -
| Sf. Gutt
Í minningu -
| Sf. Gutt
Er Curtis Jones á förum?

