Úr leik!

Kvennalið Liverpool féll út úr FA bikar kvenna í undanúrslitum annað árið í röð. Þetta gerðist líka á síðustu leiktíð. Það sem meira er sigurmark andstæðinga kom í viðbótartíma í bæði skiptin!
Liverpool mætti nú Brighton and Hove Albion. Ekki er leikið á hlutlausum völlum í undanúrslitum kvenna og Liverpool fékk heimaleik.
Denise O´Sullivan og Beata Olsson komu Liverpool í 2:0 á 11. og 22. mínútu. Útlitið stórgott en Manuela Vanegas minnkaði muninn í 2:1 mínútu eftir að Beate skoraði. Brighton jafnaði svo á 54. mínútu þegar Madison Haley skoraði. Allt stefndi í framlengingu en þegar komið var fram á fimmtu mínútu viðbótartíma, af sex, skoraði Nadine Noordam og tryggði Brighton sæti í úrslitaleiknum. Grátlegur endir fyrir Liverpool!
Á síðustu leiktíð komst Liverpool líka í undanúrslit en tapaði 2:1 fyrir Chelsea. Liverpool komst þá yfir eins og nú en tapaði með marki á fjórðu mínútu viðbótartíma af sex. Grátlegt!
Brighton mætir Manchester City í úrslitaleiknum. City getur þar með unnið Tvennu því liðið hefur nú þegar tryggt sér Englandsmeistaratitilinn!
-
| Sf. Gutt
Richard Hughes lætur af störfum -
| Sf. Gutt
Alisson kominn upp í fjórða sæti! -
| Sf. Gutt
Leikjatilfærslur -
| Sf. Gutt
Nýr varafyrirliði -
| Grétar Magnússon
Gluggadagur - hvað er títt? -
| Grétar Magnússon
Stefan Bajcetic seldur til Celta Vigo -
| Grétar Magnússon
Barcola staðfestur -
| Grétar Magnússon
Leikdagar í Meistaradeild -
| Grétar Magnússon
Þriðja treyjan kynnt til leiks -
| Grétar Magnússon
Stórleikur í Deildarbikar

